Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 15.10.–12.11.2018

2

Í vinnslu

  • 13.11.2018–15.8.2019

3

Samráði lokið

  • 16.8.2019

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-166/2018

Birt: 15.10.2018

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Forsætisráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002, ásamt síðari breytingum (takmarkaðri ábyrgð hýsingaraðila)

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi þann 21. janúar 2019 og var það samþykkt á Alþingi þann 7. júní 2019. Í greinargerð sem fylgdi frumvarpinu er gerð grein fyrir úrvinnslu úr samráðinu.

Málsefni

Með frumvarpinu er stefnt að rýmkun tjáningarfrelsis með því að draga úr ábyrgð hýsingaraðila og skyldu þeirra til að taka niður gögn.

Nánari upplýsingar

Þann 16. mars 2018 skipaði forsætisráðherra nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis. Var nefndinni m.a. falið að vinna frekar afurðir stýrihóps sem skipaður var í kjölfar þingsályktunar nr. 23/138 um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Þá skyldi nefndin fara yfir fyrirliggjandi tillögur á þessu sviði, auk þess að meta hverjar aðrar lagabreytingar kunni að vera æskilegar. Gert var ráð fyrir því að nefndin skili einkum af sér í formi lagafrumvarpa og eftir atvikum annarra undirbúningsskjala lagasetningar. Var henni falið að skila af sér í tveimur skrefum. Þannig skyldi tilteknum þáttum lokið fyrir 1. október 2018 en öðrum fyrir 1. mars 2019. Þann 26. september 2018 skilaði nefndin af sér fyrri hluta vinnu sinnar. Meðal afurðanna var frumvarp til laga um takmarkaðri ábyrgð hýsingaraðila.

Með frumvarpinu er stefnt að rýmkun tjáningarfrelsis með því að draga úr ábyrgð hýsingaraðila og skyldu þeirra til að taka niður gögn. Verði frumvarpið að lögum verður meginreglan um að slíkir aðilar beri ekki ábyrgð á gögnum sem þeir hýsa ekki lengur bundin því skilyrði að þeir fjarlægi eða hindri gögn eftir að hafa fengið tilkynningu um meint brot á ákvæðum höfundalaga, heldur þarf að koma til bein vitneskja þeirra um að um sé að ræða ólöglega starfsemi eða upplýsingar.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (4)

Umsjónaraðili

Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis

oddur.thorri.vidarsson@for.is