Tímalína máls
Til umsagnar
6.–28.11.2018
Í vinnslu
29.11.2018–5.3.2020
Samráði lokið
6.3.2020
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-223/2018
Birt: 6.11.2018
Fjöldi umsagna: 2
Annað
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Drög að leiðbeiningum um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga
Niðurstöður
Tvær umsagnir bárust um drög að leiðbeiningum um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga. Farið var yfir umsagnir og tekið tillit til beggja umsagna. Gerðar voru breytingar á uppsetningu ákvæða um tekju- og eignaviðmið, ákvæði um að hægt væri að óska eftir rökstuðning fyrir forgangsröðun umsóknar var tekið út auk þess sem orðalagi var breytt til að skýra betur óljós ákvæði og koma til móts við athugasemdir í umsögnum. Endanlegar leiðbeiningar má sjá undir hlekknum hér fyrir neðan; nánar um niðurstöður.
Málsefni
Í leiðbeiningunum er að finna sjónarmið og viðmið fyrir sveitarfélög við setningu reglna um úthlutun á félagslegu íbúðarhúsnæði í þeirra eigu.
Nánari upplýsingar
Samkæmt 5. gr. samkomulags dags. 31. maí 2016, á milli ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga skal velferðarráðuneytið gefa út leiðbeiningar um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga.
Samkomulaginu er ætlað að stuðla að samræmi á milli reglna sveitarfélaga og vinna að húsnæðisöryggi íbúa þeirra. Í því skyni er markmiðið að tryggja aðgengi að félagslegu leiguhúsnæði og lágmarka biðtíma eftir slíku húsnæði eins og kostur er.
Leiðbeiningum er ætlað að vera sveitarstjórnum og fastanefndum þeirra til aðstoðar við undirbúning að setningu reglna. Jafnframt þjóna leiðbeiningar þeim tilgangi að vera til fyllingar reglum einstakra sveitarfélaga og til hliðsjónar við skýringu þeirra.
Í leiðbeiningunum er að fjallað um markmið og lagagrundvöll reglna um félagslegt íbúðarhúsnæði, skilyrði, málsmeðferð og dæmi um matsviðmið vegna mats á félagslegum aðstæðum umsækjenda.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Skrifstofa félagsþjónustu
frn@frn.is