Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 14.–28.11.2018

2

Í vinnslu

  • 29.11.2018–3.7.2019

3

Samráði lokið

  • 4.7.2019

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-231/2018

Birt: 14.11.2018

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, plastpokar (EES-innleiðing)

Niðurstöður

Frumvarpið var sett fram til kynningar í samráðsgátt Stjórnarráðsins 14. nóvember 2018 og var umsagnarfrestur til 28. nóvember 2018. Alls bárust fimm umsagnir um frumvarpið. Í greinargerð frumvarps til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir er gerð grein fyrir athugasemdum við frumvarpið og viðbrögð ráðuneytisins við þeim en frumvarpið var lagt fram á Alþingi í janúar 2019.

Málsefni

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu er verið að innleiða tilskipun (ESB) 2015/720 um breytingu á tilskipun 94/62/EB að því er varðar að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti.

Nánari upplýsingar

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu er verið að innleiða tilskipun (ESB) 2015/720 um breytingu á tilskipun 94/62/EB að því er varðar að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti.

Í frumvarpinu er sett fram tillaga að tölulegum markmiðum sem skuli náð varðandi árlega notkun burðarpoka úr plasti. Lagt er til að eigi síðar en 31. desember 2019 skuli árlegt notkunarmagn burðarpoka úr plasti vera 90 á hvern einstakling eða færri og eigi síðar en 31. desember 2025 skal árlegt notkunarmagn vera 40 burðarpokar eða færri.

Þá er lagt til í frumvarpinu að óheimilt verði að afhenda burðarpoka, þ.m.t. burðarpoka úr plasti, án endurgjalds á sölustöðum vara og að gjaldið verði sýnilegt á kassakvittun.

Að lokum er lagt til að óheimilt verði að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er með eða án endurgjalds, á sölustöðum vara frá og með 1. júlí 2021.

Frumvarpið er í samræmi við tillögu að aðgerðaáætlun um hvernig draga má úr notkun plasts, bæta endurvinnslu þess og takast á við plastmengun í hafi sem samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum skilaði til umhverfis- og auðlindaráðherra 1. nóvember 2018. Þar eru lagðar til alls 18 aðgerðir og eru tillögurnar í samráðsferli til 4. desember 2018. Ein af aðgerðunum sem gerð er tillaga um varðar burðapoka úr plasti.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfis og skipulags

postur@uar.is