Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.–28.11.2018

2

Í vinnslu

  • 29.11.–3.12.2018

3

Samráði lokið

  • 4.12.2018

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-240/2018

Birt: 23.11.2018

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að frumvarpi til laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

Niðurstöður

Við vinnu frumvarpsins hafði dómsmálaráðuneytið samráð við ríkislögreglustjóra, ríkissaksóknara, Persónuvernd, lögregluembættin, héraðssaksóknara, Tollstjóra og Landhelgisgæslu Íslands. Þá naut ráðuneytið sérstakrar aðstoðar og ráðgjafar Sigrúnar Jóhannesdóttur, lögfræðings og fyrrverandi forstjóra Persónuverndar. Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt stjórnarráðsins þann 23. nóvember 2018 og var hægt að skila inn umsögn til og með 28. nóvember 2018. Eins umsögn barst frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra.

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs dög að frumvarpi til laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Óskað er eftir umsögnum til 28. nóvember nk.

Nánari upplýsingar

Um er að ræða ný heildarlög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga á sviði refsivörslu. Mun frumvarpið leiða til mikilla réttarbóta á sviðinu þar sem slík heildarlög hafa ekki áður verið sett. Markmið þess er m.a. að stuðla að því að löggæslu- og fullnustuyfirvöld fari með persónuupplýsingar í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs og að tryggja áreiðanleika og gæði slíkra upplýsinga.

Frumvarpið tekur í miklum mæli mið af svonefndri löggæslutilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/680 frá 27. apríl 2016 og gildir um alla vinnslu persónuupplýsinga hjá lögbærum yfirvöldum sem fram fer í svonefndum löggæslutilgangi. Til lögbærra yfirvalda teljast dómsmálaráðuneytið, ríkislögreglustjóri, lögregluembættin, ríkissaksaksóknari, héraðssaksóknari, Fangelsismálastofnun, Tollstjóri og Landhelgisgæsla Íslands.

Í frumvarpinu er kveðið á um þær meginreglur sem gilda um vinnslu persónuupplýsinga, reglur um þær skrár sem lögbær yfirvöld halda, miðlunarheimildir sömu yfirvalda, rétt einstaklinga til aðgangs að upplýsingum og takmarkanir á þeim rétti, auk ákvæða um öryggi og eftirlit. Efnisreglur frumvarpsins taka mið af eðli og þörfum umræddra yfirvalda en eru að öðru leyti sambærilegar þeim sem er að finna í lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Dómsmálaráðuneyti

postur@dmr.is