Tímalína máls
Til umsagnar
29.11.–20.12.2018
Í vinnslu
21.12.2018–4.1.2022
Samráði lokið
5.1.2022
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-244/2018
Birt: 29.11.2018
Fjöldi umsagna: 2
Drög að reglugerð
Utanríkisráðuneytið
Utanríkismál
Drög að reglugerð um hergagnaflutninga
Niðurstöður
Eftir að drög að reglugerð voru birt í samráðsgáttinni var farið yfir umsagnir sem bárust og voru gerðar breytingar á drögunum með hliðsjón af athugasemdunum einkum frá Air Atlanta. Endanleg reglugerð nr. 464/2019 var birt á vef Stjórnartíðinda þann 30. apríl 2019.
Málsefni
Utanríkisráðuneytið birtir til umsagnar drög að reglugerð um flutning hergagna loftförum. Markmið endurskoðunarinnar var að setja skýrari fyrirmæli um hvernig standa skuli að leyfisveitingum vegna flutning hergagna með loftförum og í hvaða tilvikum beri að hafna slíkum umsóknum.
Nánari upplýsingar
Með forsetaúrskurði nr. 20/2018 um breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálaefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands var utanríkisráðuneytinu falið að annast leyfisveitingar vegna flutnings hergagna og annars varnings með loftförum skv. 1. og 5. mgr. 78. gr. laga um loftferðir. Í framhaldi þess hefur utanríkisráðuneytið unnið drög að endurskoðaðri reglugerð um flutning hergagna með loftförum en fyrri reglugerð um það efni er frá 2005 (reglugerð 937/2005).
Lagt er til að gildissvið reglugerðarinnar nái til bæði flutnings hergagna um íslenskt yfirráðasvæði og með íslenskum loftförum hvar sem þau eru stödd. Þá hafa reglugerðardrögin að geyma nánari skilgreiningu á því hvað teljist hergögn. Ennfremur mæla drögin nánar fyrir um í hvaða tilvikum beri að hafna umsókn um leyfi til flutninga hergagna. Skv. drögum er lagt til að utanríkisráðuneytið annist mat á umsóknum um leyfi til hergagnaflutninga en formleg afgreiðsla slíkra umsókna fari þó áfram í gegnum Samgöngustofu.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 20. desember nk.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
postur@utn.stjr.is