Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 24.1.–7.2.2019

2

Í vinnslu

  • 8.–12.2.2019

3

Samráði lokið

  • 13.2.2019

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-28/2019

Birt: 24.1.2019

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Urðu að lögum nr. 29/2019.

Málsefni

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum, nr. 88/1991 (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).

Nánari upplýsingar

Með samþykkt laga um breytingu á þinglýsalögum, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu og lögum um aukatekjur ríkissjóðs, hinn 14. desember sl. var gert heimilt að þinglýsa með rafrænni færslu. Lögin öðlast gildi 1. mars 2019. Áður en að gildistöku laganna kemur er talið að laga þurfi orðalag 1. mgr. 8. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, sem kveður á um að fyrir þinglýsingu skjala skuli greiða 2.500 kr., til þess að skýrt sé að þinglýsingu með rafrænni færslu muni einnig fylgja gjald að sömu fjárhæð.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

postur@fjr.is