Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.1.–13.2.2019

2

Í vinnslu

  • 14.2.–18.3.2019

3

Samráði lokið

  • 19.3.2019

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-32/2019

Birt: 30.1.2019

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrslur)

Niðurstöður

Ein umsögn barst frá Samtökum atvinnulífsins um frumvarpsdrögin (sjá niðurstöðuskjal).

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil).

Nánari upplýsingar

Með breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (breytingarlög nr. 112/2016) var ákvæði um ríki-fyrir-ríki skýrslur tekið upp í 91. gr. a. laganna. Efni ákvæðisins var byggt á leiðbeiningum OECD en þann 12. maí 2016 undirritaði Ísland samkomulag á vegum OECD um skipti á svokölluðum ríki-fyrir-ríki skýrslum um starfsemi fjölþjóðlegra fyrirtækjasamstæðna. Skýrslunum er ætlað að auðvelda skattyfirvöldum að fá yfirsýn yfir starfsemi fjölþjóðlegra fyrirtækjasamstæðna. .

Ákvæði um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslum byggja á mikilli samvinnu milli skattyfirvalda þvert á landamæri og því er mikilvægt að regluverk um skil sé samræmt. OECD hefur haft eftirlit með því að reglur þeirra ríkja sem undirritað samkomulag um skipti á ríki- fyrir- ríki skýrslum fullnægi þeim viðmiðum sem sett hafa verið. OECD hefur nú gert athugasemdir við íslensku reglurnar og telur að skerpa þurfi á ákveðnum atriðum, s.s. ákvæðum um fjárhæðarmörk og skilgreiningum hugtaka. Markmið þessa frumvarps er að bregðast við athugasemdum OECD með breytingum á núgildandi ákvæði tekjuskattslaga um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

postur@fjr.is