Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.4.–11.6.2019

2

Í vinnslu

  • 12.6.–6.8.2019

3

Samráði lokið

  • 7.8.2019

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-116/2019

Birt: 30.4.2019

Fjöldi umsagna: 19

Drög að stefnu

Innviðaráðuneytið

Sveitarfélög og byggðamál

Grænbók, stefna um málefni sveitarfélaga

Niðurstöður

Grænbók – umræðuskjal um stefnumótun í málefnum sveitarfélaga var kynnt öllum sveitarstjórnum um leið og hún var sett inn á samráðsgátt Stjórnarráðsins. Alls bárust 24 umsagnir, flestar frá þeim sveitarstjórnum og byggðaráðum þar sem grænbókin hafði verið kynnt en einnig frá einstaklingum og samtökum. Listi yfir umsagnaraðila og stutt samantekt um umsagnirnar eru meðfylgjandi sem fylgiskjal. Þá er meðfylgjandi samantekt og frásagnir af kynningarfundum með fulltrúum sveitarfélaga og landshlutasamtaka. Almennt má segja að umsagnirnar hafi verið jákvæðar, sveitarstjórnarmenn fagna samtalinu um stefnumótun í málefnum sveitarfélaga og eru sammála helstu leiðarljósum og markmiðum sem kynnt voru í Grænbókinni.

Málsefni

Grænbókin er umræðuskjal en almenningi og hagsmunaaðilum er boðið að leggja fram sín sjónarmið um álitaefni, viðfangsefni og framtíðarsýn sem nýst gætu í stefnumótuninni. Í grænbókinni eru settar fram 50 lykilspurningar sem tengjast viðfangsefninu og vonir standa til að komi að gagni í stefnumótunarferlinu.

Nánari upplýsingar

Sumarið 2018 var með lögum nr. 53/2018 bætt við sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011, ákvæðum um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins í málefnum sveitarfélaga. Samkvæmt þeim skal ráðherra sveitarstjórnarmála leggja að minnsta kosti á þriggja ára fresti fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga til fimmtán ára í senn. Í áætluninni skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára á þessu sviði. Um er að ræða nýmæli sem er hliðstæð annarri áætlanagerð á verksviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Meginmarkmið stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga er að draga saman meginþætti langtímastefnumörkunar ríkisins í þeim málaflokkum sem snúa að verkefnum sveitarfélaga og stuðla að samræmingu í stefnumótun ríkis og sveitarfélaga á þeim sviðum með heildarhagsmuni sveitarstjórnarstigsins að leiðarljósi. Jafnframt að setja fram leiðarljós um hvert stefna skuli í málefnum sveitarstjórnarstigsins með eflingu þess og sjálfbærni að markmiði.

Áætlunin skal ennfremur byggjast á markmiðum sveitarstjórnarlaga og stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun. Hún skal taka mið af fyrirliggjandi stefnumótandi áætlunum opinberra aðila sem varða stöðu og þróun sveitarstjórnarmála. Sérstaklega skal horft til þeirrar stefnumörkunar sem fram kemur í lögbundinni byggðaáætlun og sóknaráætlunum. Þá skal m.a. horft til samgönguáætlunar, fjarskiptaáætlunar og landsskipulagsstefnu. Við mótun áætlunarinnar skal ávallt gætt að sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið

srn@srn.is