Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.6.–5.7.2019

2

Í vinnslu

  • 6.7.2019–13.1.2020

3

Samráði lokið

  • 14.1.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-139/2019

Birt: 5.6.2019

Fjöldi umsagna: 3

Annað

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Áform um breytingar á fyrirkomulagi prófs í verðbréfaviðskiptum

Niðurstöður

Þrjár umsagnir bárust um áformin sem tekið var tillit til, eins og tilefni þótti til, við nánari útfærslu tillagðra breytinga. Drög að nýrri reglugerð um almenn verðbréfaréttindi og fjárfestingarráðgjafaréttindi auk draga að lagaákvæðum um prófin og prófnefnd verðbréfaviðskipta hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda (sjá hlekk hér að neðan). Þar er til að mynda gert ráð fyrir að þeir sem hafa próf í verðbréfaviðskiptum muni fá almenn verðbréfaviðskiptaréttindi auk þess sem gert er ráð fyrir að hægt sé að uppfylla kröfur um endurmenntun með ýmsum hætti.

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur í hyggju að breyta fyrirkomulagi prófs í verðbréfaviðskiptum til samræmis við það sem nú þekkist á hinum Norðurlöndunum.

Nánari upplýsingar

Fyrirkomulag prófs í verðbréfaviðskiptum (áður kallað löggilding verðbréfamiðlara) hefur staðið nánast óbreytt í 30 ár. Ráðuneytið hefur í hyggju að breyta fyrirkomulagi prófs í verðbréfaviðskiptum til samræmis við það sem nú þekkist á hinum Norðurlöndunum. Þau hafa undanfarin ár endurskoðað fyrirkomulag sitt vegna slíkra prófa, m.a. til að bregðast við nýjum kröfum byggðum á tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID2).

Helstu tillögur um breytingar á fyrirkomulagi prófsins:

1. Að um verði að ræða réttindi en ekki próf.

2. Prófsefni verðbréfaviðskiptaprófs verði stytt verulega og gert hnitmiðara.

3. Að kynnt verði til sögunnar ný réttindi og próf fyrir fjárfestingarráðgjafa til að bregðast við nýjum kröfum MiFID2.

4. Að gerð verði krafa um endurmenntun (símenntun) hjá þeim aðilum sem öðlast annað hvort almenn verðbréfaréttindi eða fjárfestingarráðgjafaréttindi.

Tillögurnar byggja á meðfylgjandi skýrslu sem dr. Andri Fannar Bergþórsson vann fyrir prófnefnd verðbréfaviðskipta um endurskoðun á fyrirkomulagi prófs til verðbréfaviðskipta.

Vert er að nefna að ráðuneytið stefnir ekki að því, að svo stöddu, að gerð verði krafa um að þeir sem hlotið hafa verðbréfaréttindi eða fjárfestingarráðgjafaréttindi muni þurfa að þreyta próf á vegum prófnefndar á nokkurra ára fresti til að viðhalda réttindum sínum, heldur að þeir sýni fram á að þeir hafi viðhaldið þekkingu sinni með símenntun, t.d. með viðurkenndum námskeiðum.

Gert er ráð fyrir að í sumar verði birt í Samráðsgátt stjórnarráðsins frumvarpsdrög sem ætlað er að innleiða MiFID2 í íslenskan rétt. Í drögunum munu koma fram þær breytingar sem lagðar eru til á lagastoð og umgjörð prófnefndar verðbréfaviðskipta.

Áætlanir ganga út á að nýtt fyrirkomulag um verðbréfaréttindi og fjárfestingarráðgjafaréttindi gangi í gildi um haustið 2020.

Ráðuneytið óskar eftir umsögnum haghafa um tillögur ráðuneytisins.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (3)

Umsjónaraðili

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

fjr@fjr.is