Tímalína máls
Til umsagnar
13.–28.6.2019
Í vinnslu
29.2019–17.6.2020
Samráði lokið
18.6.2020
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-144/2019
Birt: 13.6.2019
Fjöldi umsagna: 1
Drög að reglugerð
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Drög að reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja
Niðurstöður
Ein umsögn barst við drögin að reglugerðinni frá Samtökum Ferðaþjónustunnar (SAF). Tekið var tillit til hennar eins og frekast var unnt. Reglugerðin var birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 30. desember 2019 og er nr. 1243/2019, sjá nánar: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=5df0fe56-b017-4138-95fd-36b0c2f7d355
Málsefni
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að nýrri reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja.
Nánari upplýsingar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að nýrri reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja. Reglugerðin mun koma í stað núgildandi reglugerðar nr. 288/1995, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja. Núgildandi reglugerð hefur ekki tekið breytingum um langt skeið en töluverðar breytingar hafa átt sér stað á lagaumhverfi virðisaukaskatts á síðustu misserum er tengjast kaupum og sölu á vörum og þjónustu yfir landamæri. Í ljósi þessa er nú lagt til að ný reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja öðlist gildi.
Reglugerðinni er skipt upp í fjóra kafla.
- Í fyrsta kafla er að finna almenn ákvæði um gildissvið og tilgang auk skilgreiningar á erlendu fyrirtæki o.fl.
- Í öðrum kafla er að finna skilyrði fyrir endurgreiðslum.
- Í þriðja kafla er fjallað um framkvæmd endurgreiðslna.
- Í fjórða kafla er að finna ýmis ákvæði.
Umsögnum skal skilað eigi síðar en föstudaginn 28. júní 2019 í samráðsgátt https://samradsgatt.island.is/.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Skrifstofa skattamála
hlynur.ingason@fjr.is