Tímalína máls
Til umsagnar
20.6.–5.7.2019
Í vinnslu
6.–28.7.2019
Samráði lokið
29.7.2019
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-148/2019
Birt: 21.6.2019
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
Niðurstöður
Áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga voru lögð fram til umsagnar í samráðsgátt Stjórnvalda á Ísland.is dagana 20. júní – 5. júlí 2019. Ein umsögn barst í samráðsgáttina frá Bæjarráði Akraneskaupstaðar.
Málsefni
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Frumvarpið mun fela í sér breytingar á ákvæðum 3. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga er snúa að Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar
Frumvarpið mun fela í sér breytingar á ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga er snúa að Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Tilefni þess er tvíþætt:
Annars vegar kallar dómur Hæstaréttar frá 14. maí sl., í máli nr. 34/2018, Grímsnes- og Grafningshreppur gegn íslenska ríkinu, á breytingar á lögunum, með það meginhlutverk Jöfnunarsjóðs að leiðarljósi að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga. Í dómnum komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að það framsal löggjafans til ráðherra á ákvörðunarvaldi um skerðingu á tilteknum framlögum Jöfnunarsjóðs til tekjuhárra sveitarfélaga, sem felst í lokamálslið 18. gr. laganna, brjóti í bága við lagaáskilnaðarreglu 2. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar. Í umræddu ákvæði stjórnarskrárinnar segir að tekjustofnar sveitarfélaga skuli ákveðnir með lögum, svo og réttur þeirra til að ákveða hvort og hvernig þeir eru nýttir.
Hins vegar eru uppi áform um aukna þátttöku Jöfnunarsjóðs í átaki til eflingar sveitarstjórnarstigsins sem kalla á að heimildir sjóðsins til úthlutunar á sérstökum framlögum vegna sameiningar sveitarfélaga verði rýmkaðar. Er markmið þeirra að tryggja að kostnaður við framkvæmd sameininga standi þeim ekki í vegi og jafnframt að tryggja að hið sameinaða sveitarfélag standi ekki verr að vígi gagnvart Jöfnunarsjóði en forverar þess gerðu hvert í sínu lagi.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Tenging við önnur mál (1)
Umsjónaraðili
Engin skráður umsjónaraðili.