Til umsagnar
24.7.–12.8.2019
Í vinnslu
13.8.2019–14.9.2021
Samráði lokið
15.9.2021
Mál nr. S-195/2019
Birt: 24.7.2019
Fjöldi umsagna: 3
Annað
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Þrjár umsagnir bárust um málið þar sem umræddum tillögum var fagnað. Ein efnisleg athugasemd barst þess efnis að í tillögunum væri ekki vikið að takmörkunum á skammtímaleiguhúsnæði til ferðamannen tekið fram að löggjöf um gististaði væri ekki á forræði félagsmálaráðuneytisins en kallað væri eftir samræmdri stefnu stjórnvalda í húsnæðismálum. Þess má geta að félagsmálaráðuneytinu hefur verið unnið að frumvarpi um skammtímaleigu í fjöleignarhúsum. Verkefnið hefur nú hlotið heitið Tryggð byggð og verið útvíkkað þannig að það nái til samstarfs á landsvísu um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinn
Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á að bæta stöðu húsnæðismála. Það verkefni sem hér er kynnt er í samræmi við þau markmið sem sett eru fram í Byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar og eru mikilvægur liður í framkvæmd hennar.
Á haustmánuðum boðaði félags- og barnamálaráðherra að bregðast þyrfti langvarandi stöðnun á húsnæðismarkaði á landsbyggðinni og fól Íbúðalánasjóði að fara af stað með tilraunaverkefni í því skyni að leita leiða til þess að bregðast við vandanum. Meðal fyrirmynda í tilraunaverkefninu eru lausnir frá Noregi en stórt hlutfall sveitarfélaga þar hefur tekist á við sambærilegar áskoranir og íslensk sveitarfélög á landsbyggðinni, svo sem ótryggan eða staðnaðan húsnæðismarkað eða mikinn skort á íbúðarhúsnæði.
Val á sveitarfélögum til þátttöku í verkefninu var unnið í samvinnu Íbúðalánasjóðs, Byggðastofnunar og Sambands Íslenskra sveitarfélaga og tók mið af því að áskoranirnar sem þau stæðu frammi fyrir væru mismunandi og á ólíkum landsvæðum. Þannig verði til breiðara framboð lausna í húsnæðimálum sem nýst geti sem flestum sveitarfélögum með sambærilegar eða svipaðar áskoranir. Íbúðalánasjóður hefur undanfarna mánuði unnið náið með tilraunasveitarfélögunum sjö að því að greina þann vanda sem þau standa frammi fyrir og á grundvelli þeirrar vinnu hefur sjóðurinn unnið tillögur að lausnum til þess að mæta þeim áskorunum sem steðja að sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Hér kynnir félags- og barnamálaráðherra stöðu verkefnisins og þær aðgerðir sem fyrirhugaðar eru í þessum efnum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
skrifstofa húsnæðis- og lífeyrismála
frn@frn.is