Samráð fyrirhugað 13.09.2019—04.10.2019
Til umsagnar 13.09.2019—04.10.2019
Niðurstöður í vinnslu frá 04.10.2019
Niðurstöður birtar 24.04.2020

Drög að reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags

Mál nr. 220/2019 Birt: 13.09.2019 Síðast uppfært: 24.04.2020
  • Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
  • Drög að reglugerð
  • Málefnasvið:
  • Umhverfismál

Niðurstöður birtar

Athugasemdir í umsögnum lutu aðallega að 12. gr. sem fjallar um umhverfismat strandsvæðisskipulags. Breytingar voru því gerðar á því ákvæði.

Skjal að loknu samráði

Ferill máls

Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 13.09.2019–04.10.2019. Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 24.04.2020.

Málsefni

Reglugerðin er sett á grundvelli nýrra laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða. Hún fjallar nánar á um gerð strandsvæðisskipulags og ferli þess og starf svæðisráða í tengslum við gerð skipulagsins.

Um er að ræða nýja reglugerð sem ráðherra ber að setja á grundvelli laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða. Lögin fela í sér nýmæli og gera ráð fyrir að í fyrsta skipti hér á landi verði unnið strandsvæðisskipulag fyrir strendur Íslands.

Samkvæmt lögunum er strandsvæðisskipulag unnið fyrir tiltekið afmarkað strandsvæði. Þar koma fram markmið og ákvarðanir um framtíðarnýtingu og vernd og þær framkvæmdir sem geta fallið að nýtingu svæðisins. Í reglugerðardrögunum er kveðið nánar á um efni og kynningu lýsingar vegna gerðar strandsvæðisskipulags, efni og framsetningu þess og samráð og kynningu við gerð og afgreiðslu skipulagsins. Átta manna svæðisráð, sem samanstendur af fulltrúum ríkis og sveitarfélaga, bera ábyrgð á gerð strandsvæðisskipulags, og er í drögunum kveðið nánar á um starf svæðisráða.

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Fjórðungssamband Vestfirðinga - 25.09.2019

Fjórðungssamband Vestfirðinga gerir athugasemd við 2. m.m.gr 12. gr , "Tilgreina skal í umhverfisskýrslu hvort setja þurfi skilyrði fyrir framkvæmdum í strandsvæðisskipulag til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið." Orðalagið "setja þurfi skilyrði" fyrir umhverfismati getur skapað vafa um hvort hér verði um bindandi ákvæði í umhverfisskýrslu, nema fyrirfram liggi að svæðis sé háð takmörkunum m.t.t. verndarsjónarmiða. Finna verður orðalag sem taki af allan vafa um þetta

Afrita slóð á umsögn

#2 Samband íslenskra sveitarfélaga - 02.10.2019

Vinsamlegast sjá umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Virðingarfyllst,

f.h. sambandsins,

Vigdís Häsler, lögmaður

Viðhengi