Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.10.–8.11.2019

2

Í vinnslu

  • 9.11.2019–25.1.2021

3

Samráði lokið

  • 26.1.2021

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-266/2019

Birt: 25.10.2019

Fjöldi umsagna: 7

Drög að frumvarpi til laga

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á höfundalögum nr. 73/1972 (aðild að alþjóðasáttmála og innleiðing tilskipunar um tiltekna notkun einstaklinga sem eiga við sjón- eða lestarhömlun að stríða)

Niðurstöður

Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 [aðild að alþjóðasáttmála og innleiðing tilskipunar um tiltekna notkun einstaklinga sem eiga við sjón- eða lestarhömlun að stríða að verkum sem vernduð eru af höfundarétti] var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frá 25. október til 8. nóvember 2019. Alls bárust sjö umsagnir. Ekki var talin ástæða til að breyta orðalagi frumvarpsins vegna innkominna athugasemda þar sem þær varða verkferla og ákvörðun bóta sem frumvarpið leggur í hendur aðila að semja um.

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum til að samræma reglur um gerð eintaka af höfundavernduðum verkum fyrir þá sem stríða við sjón- eða lestrarhömlun.

Nánari upplýsingar

Mennta- og menningarmálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum nr. 73/1972. Í frumvarpinu er lagt til að ákvæðum 19. gr. höfundalaga um takmarkanir á einkarétti höfunda til hagsbóta fyrir þá sem ekki geta nýtt sér venjulegt prentað mál til lesturs verði breytt í samræmi við ákvæði Marakess-sáttmálann frá 2013 um að greiða fyrir aðgengi þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða glíma við aðra prentleturshömlun að útgefnum verkum og ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1564 frá 13. september 2017 um tiltekna leyfilega notkun á tilteknum verkum og öðru efni sem er verndað af höfundarrétti og skyldum réttindum í þágu blindra, sjónskertra eða þeirra sem glíma við aðra prentleturshömlun og um breytingu á tilskipun 2001/29/EB um samræmingu tiltekinna þátta höfundaréttar og skyldra réttinda í upplýsingasamfélaginu.

Lagt er til að settar verði í höfundalög fimm nýjar greinar, 19. gr. a. – e., sem varða gerð eintaka af höfundavörðum verkum á aðgengilegu formi sem einstaklingar sem á við sjón- eða lestrarhömlun að stríða. Í þeim greinum er að finna skilgreiningar á hugtökum, ákvæði um hverjir geti gert slík eintök og hverjir geti notað þau, ákvæði um bætur til rétthafa og að lokum ákvæði um starfsreglur viðurkenndra eininga sem geta gert eintök á aðgengilegu formi og miðlað þeim til annarra viðurkenndra eininga í ríkjum EES svæðisins og eftir aðild Íslands að Marakess-sáttmálanum til annarra aðildarríkja hans. Þá er lagt til að ákvæðum núgildandi 19. gr. og annarra ákvæða sem vísa til hennar verði breytt til samræmis við ný ákvæði.

Nýju ákvæðin fela ekki í sér efnisbreytingu á 19. gr. núgildandi höfundalaga að öðru leyti en því að lagt er til að heimilað verði að nota eintök, sem gerð eru í aðildarríkjum Marakess-sáttmálans og aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES) samkvæmt takmörkunum sem nú er að finna í 19. gr., hér á landi og öfugt. Aðrar breytingar varða framsetningu og skilgreiningar í takmörkunarákvæði höfundalaga vegna eintakagerðar og dreifingar verka til handa prentleturshömluðum einstaklingum til samræmis við sáttmálann og tilskipunina auk minni háttar breytinga á öðrum ákvæðum höfundalaganna til þannig að þau endurspegli ný ákvæði 19. gr. a. – e.

Við gerð frumvarpsins hefur verið höfð hliðsjón af innleiðingu annarra Norðurlandaþjóða á Marakess tilskipuninni og Marakess-sáttmálanum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Mennta- og menningarmálaráðuneyti

postur@mrn.is