Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.10.–10.11.2019

2

Í vinnslu

  • 11.2019–17.11.2020

3

Samráði lokið

  • 18.11.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-267/2019

Birt: 25.10.2019

Fjöldi umsagna: 3

Annað

Innviðaráðuneytið

Sveitarfélög og byggðamál

Drög að sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024

Niðurstöður

Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024 var samþykkt á aðalfundi Eyþings sem haldinn var í Dalvíkurbyggð 15. og 16. nóvember 2019. Sjá nánar um niðurstöðu samráðs í skjali.

Málsefni

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur sett til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, á vegum Eyþings, drög að nýrri sóknaráætlun Norðurlands eystra. Drög að sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020 til 2024 byggja á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69 frá árinu 2015

Nánari upplýsingar

Drög að sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024 er nú kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og verður opið fyrir athugasemdir og ábendingar til og með 10. nóvember næstkomandi.

Samráðið við mótun nýrrar sóknaráætlunar átti sér stað í þremur fösum. Fyrst fundaði fulltrúaráð Eyþings um þá framtíðarsýn sem sóknaráætlunin átti að endurspegla. Í september var síðan efnt til stórfundar, sem yfir 100 manns sóttu, og var markmiðum og aðgerðum forgangsraðað og þau tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í kjölfarið var unnið með helstu stefnuþætti, innan atvinnu- og nýsköpunar, menningarmála og umhverfismála, sem fram komu á fundunum og unnin drög að mælanlegum markmiðum og helstu áherslum. Sú stefna sem sett er fram ásamt tilheyrandi áherslum er grundvöllur að allri vinnu að sóknaráætlun Norðurlands eystra. Þannig mun m.a. starfsemi og áherslur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra byggja á henni eins og kveðið er á um í samningi um sóknaráætlun. Sömuleiðis byggja áhersluverkefni landshlutans á þessari stefnu. Íbúar og aðrir hagaðilar eru hvattir til að kynna sér nýja sóknaráætlun landshlutans í samráðsgáttinni og koma með ábendingar.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Eyþing

helgamaria@eything.is