Tímalína máls
Til umsagnar
8.11.–6.12.2019
Í vinnslu
7.12.2019–16.9.2020
Samráði lokið
17.9.2020
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-277/2019
Birt: 8.11.2019
Fjöldi umsagna: 10
Drög að stefnu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Hagskýrslugerð og grunnskrár
Stafrænt Ísland - Tæknistefna island.is (drög)
Niðurstöður
Tæknistefna Ísland.is var til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda á tímabilinu 8.11 til 6.12 2019. Stefnan var hluti af undirbúningi og forsendum fyrir útboði sem fjármála- og efnhagsráðuneytið / Stafrænt Ísland stóð fyrir og lauk í mars 2020: https://www.rikiskaup.is/is/innkaup_og_utbod/opnunarfundargerdir-1/nidurstodur-utboda Alls bárust 10 umsagnir. Rétt er að undirstrika að tæknistefnan tekur einungis utan um nýþróun á miðlægri þjónustugátt undir merkjum Ísland.is. Umsagnir og frekari niðurstöður eru í niðurstöðuskjali.
Málsefni
Stafrænt Ísland ætlar að hefja nýþróun á stafrænum lausnum sem snúa að miðlægri þjónustugátt undir merkjum island.is. Drög þessi lýsa þeirri tæknistefnu sem nýjar lausnir verða byggðar á, ásamt vinnuflæði og áherslum sem þróunarteymum ber að fylgja.
Nánari upplýsingar
Á island.is munu fyrirtæki og einstaklingar getað nálgast þjónustu hins opinbera á einfaldan og skilvirkan hátt. Nýjar lausnir verða opnar þannig að mörg teymi geti komið að þróun og stofnanir munu bera ábyrgð á sínu efni og þjónustu. Með opnum miðlægum lausnum gefst tækifæri á að auka gæði með sterkum áherslum og sjálfvirkum tólum. Þannig fær notandinn betri þjónustu, þróunarteymi vinna í skilvirkara umhverfi og stofnanir spara fjármagn með miðlægri þekkingu og útfærslu. Stafrænt Ísland ætlar að þróa allar lausnir sínar á frjálsan og opin hátt og mun tileinka sér skýjahýsingu.
Drög að tæknistefnu tekur á eftirfarandi atriðum:
- Útfærslu á nýsmíði stafrænna lausna fyrir island.is
- Skilgreiningu á tækninotkun framenda og bakenda
- Vinnuflæði teyma
- Kóðageymslu og skýjahýsingu
8 megináherslur í þróun opna miðlægra lausna undir island.is:
- Aðgengismál
- Frjáls hugbúnaður
- Hröð notendaupplifun
- Notendamiðuð hönnun
- Stöðugt rekstrarumhverfi
- Tungumálastuðningur
- Þróunarumhverfi
- Öryggismál
Um er að ræða 1. útgáfu af tæknistefnu island.is sem Stafrænt Ísland gefur út. Tæknistefna island.is verður í sífelldri þróun og nýjasta útgáfa ávallt birt á vef island.is. Lesendur eru hvattir til að koma athugasemdum um innihald tæknistefnu á framfæri hér á Samráðsgáttinni.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Tenging við önnur mál (2)
Umsjónaraðili
Jónatan Arnar Örlygsson
jonatan.orlygsson@fjr.is