Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 9.12.2019–2.1.2020

2

Í vinnslu

  • 3.1.2020–26.9.2021

3

Samráði lokið

  • 27.9.2021

Mál nr. S-303/2019

Birt: 9.12.2019

Fjöldi umsagna: 6

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar og orkunýtingaráætlun.

Niðurstöður

Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 6 umsagnir um áformin þar sem m.a. voru reifuð ýmis sjónarmið um málið. Frumvarp var í kjölfarið unnið í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu að höfðu samráði við starfshóp hinna þriggja ráðuneyta sem falið var að skoða að skoða málefni vindorkunnar og var frumvarpið auglýst til umsagnar í Samráðsgáttinni þann 9. desember 2019.

Málsefni

Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum nr. 48/2011 um verndar og orkunýtingaráætlun.

Nánari upplýsingar

Tilefni áforma um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun eru að móta opinbera stefnu til framtíðar um hagnýtingu vindorku og leyfisveitingarferli vegna hennar.

Umhverfis- og auðlindaráðherra setti fyrr á árinu á fót starfshóp til að skoða málefni vindorku í ljósi áherslu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á nauðsyn lagasetningar um málaflokkinn. Í hópnum eiga sæti fulltrúar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Meðal verkefna hópsins er að setja fram tillögur um hvernig ná megi sátt um hagnýtingu vindorku hér á landi og vinna að því búnu drög að nauðsynlegum breytingum á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun).

Verkefni starfshópsins byggist á þeirri staðreynd að vindur er ekki jafn staðbundinn orkukostur og hefðbundnari orkukostir, enda hægt að hagnýta hann á flestum stöðum landsins. Þá krefst virkjun vindorku almennt styttri undirbúnings- og framkvæmdatíma en vatnsafls- eða jarðvarmavirkjanir. Á hinn bóginn er mikilvægt að móta opinbera stefnu um hvar megi og hvar megi ekki reisa vindorkumannvirki í því skyni að koma í veg fyrir að vindorkuver verði reist á svæðum sem ekki henta fyrir slíka starfsemi.

Markmið þeirra breytinga sem lagðar verða til á lögunum eru að málsmeðferð og meðhöndlun vindorku innan rammaáætlunar taki mið af sérstöðu vindorkunnar sem orkukosts. Gert er ráð fyrir að ákvörðun um staðsetningu vindorkuvera byggist á heildstæðu mati sem taki til umhverfis, samfélags og kerfislægra þátta. Þá er gert ráð fyrir að ferli vegna mats á virkjunarkosti og töku ákvarðana um leyfi verði markvissara, einfaldara og skjótara þar sem byggt verði á skýrri stefnumörkun um staðsetningu slíkrar starfsemi.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa landgæða

hafsteinn.s.hafsteinsson@uar.is