Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.12.2019–13.1.2020

2

Í vinnslu

  • 14.1.–7.7.2020

3

Samráði lokið

  • 8.7.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-309/2019

Birt: 16.12.2019

Fjöldi umsagna: 8

Annað

Matvælaráðuneytið

Orkumál

Skýrsla um jarðstrengi í flutningskerfi raforku

Niðurstöður

Búið er að fara yfir umsagnir og er málið til skoðunar.

Málsefni

Í samræmi við þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku var sérfróður aðili fenginn til að vinna skýrslu um mismunandi tæknilegar lausnir við lagningu raflína. Skýrsla hins sérfróða aðila liggur nú fyrir og er hún lögð fram til umsagnar.

Nánari upplýsingar

Í þingsályktun 26/148, frá júní 2018, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, kemur fram að sérfróður aðili skuli fenginn til að gera sjálfstæða rannsókn á áhrifum mismunandi tæknilegra lausna við lagningu raflína og á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að aukið hlutfall flutningskerfis raforku verði lagt í jörð, með tilliti til áhrifa á raforkuverð, afhendingaröryggis, hagkvæmni, byggðaþróunar, tæknilegra lausna og umhverfiskostnaðar. Er það í samræmi við þær áherslur sem er að finna í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að treysta þurfi betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði, tryggja afhendingaröryggi um land allt og skoða að hve miklu leyti megi nýta jarðstrengi í slíkar tengingar með hagkvæmum hætti.

Til að fylgja því verkefni eftir fengu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti, á síðasta ári, óháðan sérfróðan aðila, dr. Hjört Jóhannsson, til að vinna skýrslu um jarðstrengi í flutningskerfi raforku út frá framangreindum efnisatriðum.

Skýrsla hins sérfróða aðila liggur nú fyrir og er nú sett í opið umsagnarferli hér á samráðsgátt stjórnvalda. Eru áhugasamir hvattir til að kynna sér hana og senda inn umsögn. Í framhaldinu verður farið ítarlega yfir umsagnir og að því loknu lagt mat á það hvort skýrslan og innsendar umsagnir kalli á breytingar á þeim viðmiðum og meginreglum sem gilda um lagningu jarðstrengja og loftlína, sem fram koma í þingsályktun nr. 11/144 um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

postur@anr.is