Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 18.12.2019–31.1.2020

2

Í vinnslu

  • 1.2.–10.3.2020

3

Samráði lokið

  • 11.3.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-310/2019

Birt: 18.12.2019

Fjöldi umsagna: 14

Annað

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Landsáætlun í skógrækt - drög að lýsingu

Niðurstöður

Alls skiluðu 15 aðilar inn umsögnum. Athugasemdir við lýsinguna sem var til umfjöllunar voru helst þessar: Tímaramminn er of þröngur – áætlun sem þessi krefst lengri tíma, ekki síst vegna samráðs Ábendingar um fleiri aðila sem ætti að kalla til samráðs Ábendingar um fleiri heimildir sem taka ætti tillit til Ábendingar um allmörg atriði sem vert væri að ræða sérstaklega og móta stefnu um Verkefnisstjórn hefur fjallað um athugasemdirnar og tekur tillit til þeirra í vinnunni framundan.

Málsefni

Verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar í skógrækt, sem skipuð var af umhverfis- og auðlindaráðherra í júní sl., hefur tekið saman drög að lýsingu þar sem gerð er grein fyrir þeim áherslum sem fyrirhugað er að hafa við gerð áætlunarinnar, svo sem um forsendur, viðfangsefni og fyrirhugaða kynningu og samráð við mótun áætlunarinnar. Drög að lýsingu verða til kynningar og umsagnar til 31. janúar 2020.

Nánari upplýsingar

Lýsing vinnu við landsáætlun í skógrækt

Verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar í skógrækt, sem skipuð var af umhverfis- og auðlindaráðherra í júní sl., hefur tekið saman drög að lýsingu þar sem gerð er grein fyrir þeim áherslum sem fyrirhugað er að hafa við gerð áætlunarinnar, svo sem um forsendur, viðfangsefni og fyrirhugaða kynningu og samráð við mótun áætlunarinnar.

Í landsáætlun í skógrækt sem er til tíu ára í senn, skal kveða á um stefnu stjórnvalda þar sem fjallað er um stöðu og framtíð skóga í landinu, ásamt tölusettum markmiðum um árangur í skógrækt með hliðsjón af markmiðum laganna. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laganna skal í áætluninni gera grein fyrir:

a) forsendum fyrir vali á landi til skógræktar með tilliti til náttúruverndar, minjaverndar og landslags,

b) vernd og endurheimt náttúruskóga,

c) ræktun skóga til uppbyggingar skógarauðlindar og umfangi og horfum hvað varðar nýtingu,

d) sjálfbærri nýtingu skóga,

e) áhrifum skógræktar á atvinnuþróun og byggð,

f) aðgengi fólks að skógum til útivistar,

g) skógrækt í samhengi líffræðilegrar fjölbreytni,

h) skógrækt í samhengi loftslagsbreytinga,

i) öflun þekkingar á skógum og skógrækt og miðlun hennar,

j) eftirliti með ástandi og nýtingu skóga,

k) eldvörnum og öryggismálum.

Jafnframt skal horft til þess að ná fram hagkvæmri notkun fjármagns og mannafla og samþætta áætlunina við aðrar áætlanir ríkis og sveitarfélaga sem og alþjóðlegar skuldbindingar.

Með vísan til markmiða laga um skóga og skógrækt og ákvæða 4. gr. um innihald landsáætlunar er lögð áhersla á af hálfu ráðuneytisins að verkefnisstjórn fjalli um hvernig unnið verði að þeim markmiðum, sett fram framtíðarsýn til langs tíma, skilgreind markmið og aðgerðaáætlun með skilgreindum mælikvörðum á árangur. Jafnframt er lögð sérstök áherslu á að í landsáætlun í skógrækt sé fjallað um endurheimt náttúruskóga á stórum samfelldum svæðum og skógrækt í samhengi loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni. Gera skal sérstaklega grein fyrir notkun tegunda í skógrækt og tryggja að ekki verði notaðar ágengar framandi tegundir sem numið geta land og dreift sér. Mikilvægt er að skoðað sé sérstaklega hvernig auka megi þátttökunálgun með einstaklingum, félagasamtökum, sjálfboðaliðum o.fl. í skógræktarstarfinu og hvernig útfæra megi samstarf einkaaðila og ríkisins.

Þar sem mikil tengsl eru milli viðfangsefna við gerð landsáætlunar í skógrækt og við gerð landgræðsluáætlunar sbr 6. gr. laga nr. 155/2018 um landgræðslu skal verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar hafa samráð eins og þurfa þykir við verkefnisstjórn um gerð landgræðsluáætlunar til að tryggja samræmingu vinnulags og viðfangsefna.

Gert er ráð fyrir að verkefnisstjórnin skili tillögum að landsáætlun í skógrækt til ráðherra fyrir 1. september 2020.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Hreinn Óskarsson

hreinn@skogur.is