Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.–25.3.2020

2

Í vinnslu

  • 26.3.2020–14.12.2021

3

Samráði lokið

  • 15.12.2021

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-65/2020

Birt: 6.3.2020

Fjöldi umsagna: 8

Drög að frumvarpi til laga

Matvælaráðuneytið

Ferðaþjónusta

Frumvarp til breytinga á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Niðurstöður

Frumvarpið varð að lögum nr. 61/2020. Í samráðskafla greinargerðar frumvarpsins er að finna efnisleg viðbrögð við innsendum umsögnum. Umsagnirnar leiddu ekki til breytinga á frumvarpinu.

Málsefni

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér tillögu til breytinga á 1. gr. laganna þar sem fram koma markmið og gildissvið þeirra. Lagt er til að uppsetning 1. gr. laganna verði einfölduð og að eitt markmiða þeirra verði að styðja við svæðisbundna þróun og dreifingu ferðamanna um landið sem mun hafa áhrif við mat á umsóknum um styrki. Einnig er lagt til að ferðamannaleiðir verði styrkhæfar. Þá er lagt til að skýr skil verði sett milli Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og landsáætlunar um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum þannig að framkvæmdir á landsáætlun verði ekki styrkhæfar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

postur@anr.is