Tímalína máls
Til umsagnar
17.4.–1.5.2020
Í vinnslu
2.–6.5.2020
Samráði lokið
7.5.2020
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-85/2020
Birt: 17.4.2020
Fjöldi umsagna: 2
Drög að reglugerð
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Háskólastig
Reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Niðurstöður
Drög að reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda 17. apríl sl. og veittur frestur til umsagna til 1. maí. Fjórar umsagnir bárust, frá Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, Félagi íslenskra rafvirkja, sameiginleg umsögn eftirfalinna iðnaðarmannafélaga: Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Samiðnar, Félags hársnyrtisveina, Matvís og Rafiðnaðarsambandsins, og loks umsögn frá Samtökum iðnaðarins.
Málsefni
Mennta- og menningarmálaráðuneyti kynnir drög að reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi sem hefur stoð í lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi nr. 26/2010, sem breytt var með lögum nr. 16/2020
Nánari upplýsingar
Mennta- og menningarmálaráðuneyti kynnir drög að reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi sem hefur stoð í lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi nr. 26/2010, sem breytt var með lögum nr. 16/2020.
Reglugerðin kemur í stað reglugerðar um sama efni nr. 879/2010 og eru með henni innleidd ákvæði tilskipunar 2013/55/ESB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, einkum hvað varðar evrópskt fagskírteini.
Í reglugerðinni er fjallað ítarlega um rafrænar umsóknir um evrópsk fagskírteini, afgreiðslufresti, skil á gögnum og málsmeðferð. Einnig er fjallað um viðurkenningu er veitir takmarkaðan aðgang að störfum, uppbótarráðstafanir, viðurkenningu starfsþjálfunartíma utan heimalands og nauðsynlega tungumálakunnáttu til faglegra starfa.
Auk þessarar reglugerðar mun heilbrigðisráðuneyti birta reglugerð er snýr sérstaklega að störfum heilbrigðisstarfsfólks og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti mun birta reglugerð er snýr að viðurkenningu til starfa í löggiltum iðngreinum.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
mrn@mrn.is