Til umsagnar
6.–27.5.2020
Í vinnslu
28.5.–15.6.2020
Samráði lokið
16.6.2020
Mál nr. S-91/2020
Birt: 5.5.2020
Fjöldi umsagna: 2
Annað
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Fjölskyldumál
Alls bárust tvær umsagnir í samráðsgáttina. Tekið var tillit til athugasemda eftir atvikum. Leiðbeiningarnar hafa verið birtar á vef félagsmálaráðuneytisins á slóðinni: https://www.stjornarradid.is/verkefni/felags-og-fjolskyldumal/fatlad-folk/leidbeinandi-reglur-fyrir-sveitarfelog/
Félagsmálaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að leiðbeiningum fyrir sveitarfélög um stuðningsþjónustu skv. lögum nr. 40/1991.
Samkvæmt 25. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga er markmið stuðningsþjónustu að aðstoða og hæfa notendur sem þurfa aðstæðna sinna vegna á stuðningi að halda við athafnir daglegs lífs og/eða til þess að rjúfa félagslega einangrun. Stuðningsþjónusta skal stefna að því að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi.
Þá kemur fram í 26. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga að ráðherra skuli gefa út leiðbeiningar um framkvæmd stuðningsþjónustu skv. VII. kafla, tímafjölda og mat á þörf fyrir þjónustu. Sveitarstjórn skal setja nánari reglur um stuðningsþjónustu á grundvelli leiðbeininga ráðherra. Við setningu og framkvæmd reglna sinna skulu sveitarfélög taka mið af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Félagsmálaráðuneytið
frn@frn.is