Tímalína máls
Til umsagnar
27.5.–10.6.2020
Í vinnslu
11.6.2020–2.7.2023
Samráði lokið
3.7.2023
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-107/2020
Birt: 27.5.2020
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um akstursíþróttir
Niðurstöður
Engar umsagnir bárust vegna málsins. Niðurstaðan var samþykkt breytingareglugerðar 668/220.
Málsefni
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um akstursíþróttir.
Nánari upplýsingar
Með drögunum er lagt til að reglum um undanþágu vegna aldurs til æfinga og keppni á lokuðum svæðum utan vega verði breytt. Þannig verði akstursíþróttasamböndum falið að kveða á um lágmarksaldur ökumanna við æfingar og keppni á lokuðum svæðum í reglum sínum. Þó megi aldursmörk ekki vera lægri en skv. reglum þess alþjóðaakstursíþróttasambands sem viðkomandi íslenskt samband á aðild að. Reglur viðkomandi alþjóðasambands um lágmarksaldur skuli birtar á vefsvæði innlendu akstursíþróttasambandanna. Í dag eru aldursmörk ákveðin í reglugerðinni fyrir hvern og einn ökutækjaflokk og tekið er mið af vélarstærð. Tækniþróun er hröð og falla rafmagnsökutæki sem dæmi illa að núgildandi reglum.
Með breytingunum yrðu reglur um lágmarksaldur færðar til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar þar sem aldursmörk eru ekki fastákveðin í reglugerð heldur er það í höndum viðkomandi akstursíþróttasambanda að ákveða lágmarksaldur iðkenda.
Drögin gera ráð fyrir því að áfram verði að sækja um undanþágu til lögreglustjóra vegna keppenda sem ekki hafa ökuréttindi eða náð lágmarksaldri til að aka tilteknum ökutækjum skv. ákvæðum umferðarlaga. Þá verði áfram gerð krafa um skriflegt samþykki foreldris eða forsjáraðila þegar keppendur hafa ekki náð 18 ára aldri.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Skrifstofa samgangna
postur@srn.is