Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 1.–22.7.2020

2

Í vinnslu

  • 23.7.2020–13.9.2021

3

Samráði lokið

  • 14.9.2021

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-124/2020

Birt: 30.6.2020

Fjöldi umsagna: 215

Áform um lagasetningu

Forsætisráðuneytið

Æðsta stjórnsýsla

Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 (forseti Íslands, ríkisstjórn, verkefni framkvæmdarvalds o.fl.).

Niðurstöður

Forsætisráðherra lagði frumvarpið fram á 151. löggjafarþingi, sbr. 466. mál. Ítarlega er gerð grein fyrir niðurstöðum samráðs í sérstökum kafla í frumvarpinu.

Málsefni

Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 (forseti Íslands, ríkisstjórn, verkefni framkvæmdarvalds o.fl.).

Nánari upplýsingar

Formenn þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þar hafa ýmis ákvæði komið til skoðunar. Vinna við þetta frumvarp sem hér er birt til samráðs er nú komin það langt áleiðis að rétt er að leita álits og athugasemda frá almenningi um efni þess í samráðsgátt stjórnvalda. Áréttað er að birting í samráðsgátt á þessu stigi felur ekki í sér skuldbindingu af hálfu formanna flokkanna til að standa að framlagningu frumvarpanna í þessari mynd á Alþingi.

Rétt er að taka fram að nú stendur yfir endurskoðun laga um ráðherraábyrgð nr. 4/1963 og laga um landsdóm nr. 3/1963 en gert er ráð fyrir að frumvörp sem verða afrakstur þeirrar vinnu verði kynnt á samráðsgátt stjórnvalda í haust.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa löggjafarmála

postur@for.is