Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 24.8.–7.9.2020

2

Í vinnslu

  • 8.9.–7.10.2020

3

Samráði lokið

  • 8.10.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-157/2020

Birt: 24.8.2020

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja

Niðurstöður

Uppfærð reglugerðardrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 8. október 2020. Þar er ekki gert ráð fyrir innleiðingu á reglugerð (ESB) 2017/2188 að sinni því talið er heppilegra að innleiða hana að þýðingu lokinni. Aftur á móti er gert ráð fyrir því þar að innleiða hluta reglugerðar (ESB) 2020/873.

Málsefni

Ráðgert er að veita fjórtán Evrópugerðum er varða lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki gildi hér á landi.

Nánari upplýsingar

Evrópugerðirnar fjórtán breyta allar eða útfæra nánar reglugerð (ESB) 575/2013, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki (CRR), og tilskipun 2013/36/ESB, um aðgang að starfsemi lánastofnana og varfærniseftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum (CRD IV), sem saman mynda hryggjarstykkið í löggjöf Evrópusambandsins um lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki og hafa að mestu þegar verið teknar upp í íslenskan rétt. Innleiðing Evrópugerðanna fjórtán er ekki talin hafa veruleg áhrif hér á landi en Íslandi ber að taka þær upp í landsrétt samkvæmt EES-samningnum.

Efni Evrópugerðanna sem stendur til að innleiða er eftirfarandi:

1. Tíu gerðanna (reglugerðir (ESB) 591/2014, 1317/2014, 2015/880, 2015/2326, 2016/892, 2016/2227, 2017/954, 2017/2241, 2018/815 og 2018/1889) framlengdu ítrekað tímabundin ákvæði varðandi svonefnda miðlæga mótaðila sem eru milligönguaðilar í afleiðuviðskiptum.

2. Tvær gerðir (reglugerð (ESB) 650/2014 með breytingum samkvæmt reglugerð (ESB) 2019/912) útfæra nánar fyrirmæli um upplýsingar sem lögbær yfirvöld skulu birta.

3. Ein gerð (reglugerð (ESB) 2016/1014) framlengdi undanþágur verðbréfafyrirtækja sem sýsla með hrávörugerninga frá ákvæðum um stórar áhættuskuldbindingar og eiginfjárgrunn.

4. Ein gerð (reglugerð (ESB) 2017/2188) felldi brott tímamörk sem vörðuðu gerninga sem frönsk Fonds Communs de Créances gefa út.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is