Umsagnir frá tveimur umsagnaraðilum bárust. Ráðuneytið yfirfór athugasemdir en ekki þótti ástæða til að taka tillit til þeirra. Reglugerðin hefur verið send til stjórnartíðinda til birtingar og mun taka gildi 1. janúar 2021
Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 11.11.2020–30.11.2020.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 15.12.2020.
Heilbrigðisráðuneytið óskar eftir umsögnum um nýja reglugerð um skipan, hlutverk og starfsemi lyfjanefndar Landspítalans og lyfjanefndar Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu. Samráði lýkur þann 30. nóvember næstkomandi.
Samkvæmt 2. mgr. 46. gr. nýrra lyfjalaga nr. 100/2020 skal ráðherra setja reglugerð um skipan, hlutverk og starfsemi lyfjanefndar Landspítala og lyfjanefndar Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu.
Reglugerðin kveður m.a. á um hvernig skipa skuli lyfjanefndir stofnananna, fjölda nefndarmanna og hæfnisskilyrði þeirra, verklag nefndanna og hvernig nefndirnar skulu haga samvinnu sín á milli.
Þá er kveðið á um hlutverk nefndanna en báðar nefndirnar eiga það sameiginlegt að eiga að vinna að öruggri og skynsamlegri notkun lyfja. Hlutverk nefndanna og verkefni þeirra eru nánar útfærð í III. og IV. kafla reglugerðarinnar en jafnframt má benda á að hlutverk nefndanna hefur verið skilgreint í 44. og 45. gr. nýrra lyfjalaga nr. 100/2020.
Gert er ráð fyrir að gildistaka reglugerðarinnar verði 1. janúar 2021, en á sama tíma öðlast ný lyfjalög, nr. 100/2020, gildi.
Sjá meðf. skjal með ábendingum um betrumbætur.
Viðhengi