Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.11.–13.12.2020

2

Í vinnslu

  • 14.12.2020–4.11.2021

3

Samráði lokið

  • 5.11.2021

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-258/2020

Birt: 30.11.2020

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu

Niðurstöður

Sjá meðfylgjandi niðurstöðuskjal.

Málsefni

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpi þessu felst heildarendurskoðun á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, með tilliti til áorðinna og fyrirsjáanlegra breytinga á verkefnum stofnunarinnar. Sá lagarammi sem stofnunin vinnur eftir hefur tekið miklum breytingum á undanförnum misserum. Sem dæmi um nýlegar lagabreytingar má nefna ný póstlög nr. 98/2019, ný lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019, og lög nr. 125/2019 um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta. Þá eru nú til umfjöllunar á Alþingi frumvarp til nýrra fjarskiptalaga og frumvarp til laga um landslénið .is, sem hvoru tveggja hafa áhrif á starfsumhverfi Póst- og fjarskiptastofnunar.

Meginþungi verkefna stofnunarinnar snýr að fjarskipta- og netöryggismálum, en póstmál eru aðeins um 6% af starfsemi stofnunarinnar. Í kjölfar greiningar á verkefnum stofnunarinnar hefur einnig verið lagt til að eftirlit með póstmálum flytjist frá Póst- og fjarskiptastofnun. Ákvæði er varða flutning eftirlits með póstþjónustu verða lögð fram í öðru frumvarpi sem til stendur að flytja samhliða þessu frumvarpi.

Með frumvarpi þessu er ætlunin að einfalda og skýra regluverkið sem gildir um þá stofnun sem fer með eftirlit og stjórnsýslu á fjarskiptamarkaði. Meginmarkmið þeirra breytinga sem hér eru lagðar til er jafnframt að stuðla að því að stofnunin mæti væntingum og þörfum samfélagsins í heimi fjarskipta og netöryggis, með því að gera stofnuninni kleift að styrkja þá þætti stofnunarinnar er snúa að tæknilegum verkefnum, en á næstu árum munu verkefni stofnunarinnar á sviði netöryggismála aukast til muna.

Á fáum sviðum er viðvarandi jafn hröð tækniþróun eins og raun ber vitni á sviði fjarskipta- og netöryggis. Fjarskipti gegna lykilhlutverki í nútímasamfélagi og eru grundvöllur fyrir þjónustu á svo mörgum öðrum sviðum, því er sérstaklega mikilvægt að huga að því að öll umgjörð sé eins og best verður á kosið. Þrátt fyrir að Ísland standi mjög framarlega í alþjóðlegu samhengi hvað varðar grunnlag fjarskipta, þ.e. gæði og fjölda háhraðanettenginga á landsvísu, þá er einnig mikilvægt að tryggja næsta lag, þ.e.a.s. öryggi fjarskiptanna, til að fjarskiptagrunnvirkin nýtist sem best. Nauðsynlegt er að aðhafast til þess að halda í við tækniþróun, og nýta þau tækifæri sem bjóðast til úrbóta. Það er mikilvægt að leita leiða til þess að stofnunin geti þjónustað samfélagið sem best til framtíðar.

Til að endurspegla betur verkefni stofnunarinnar er lögð til nafnabreyting og er lagt til að stofnunin heiti nú Fjarskiptastofa.

Í þessu frumvarpi felst ekki innleiðing á EES-gerðum. Aftur á móti ber að hafa í huga að gildandi lög um Póst- og fjarskiptastofnun sem og fjarskiptalöggjöf og tengt regluverk byggist að miklu leyti á samevrópsku regluverki.

Ráðuneytið óskar eftir umsögnum frá haghöfum um drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið

srn@srn.is