Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 18.01.2021–01.02.2021.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 07.07.2021.
Markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 verði lögfest
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á loftslagslögum þar sem markmið ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 verði lögfest. Það er í samræmi við markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040, sem sett er fram í Stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar og kemur einnig fram í aðgerðaáætlun í Loftslagsmálum sem útgefin var árið 2018 og aftur 2020.
Kolefnishlutleysi lýsir ástandi þar sem jafnvægi hefur náðst milli losunar og bindingar gróðurhúsalofttegunda. Það er lykilþáttur í Parísarsamningnum og nauðsynlegt til að ná markmiði samningsins um að halda hnattrænni hlýnun jarðar innan við 2°C og eins nálægt 1,5°C eins og hægt er.
Gert er ráð fyrir nánari útfærslu á því með hvaða hætti markmiði um kolefnishlutleysi verði náð árið 2040 í vegvísi sem stjórnvöld munu vinna í víðtæku samráði.
Skemmtiferðaskip í höfn geta valdið ámóta eða meiri loftmengun í nágrenni hafna og bílaumferð á miklum umferðagötum. Ekki er því tryggt að það ráðist við loftmengun sem er yfir mörkum nema mengunin frá skemmtiferðaskipum sé tekin með í aðgerðirnar. Það þarf því að gilda jafnt fyrir skemmtiferðaskipin og ökutækin að það þarf að vera hægt að hindra mengun frá þeim þegar loftmengun er við eða yfir mörkum. Skemmtiferðaskipin eiga þá ekki að fá að vera í höfn. Ef skemmtiferðaskipin fá landtengingu rafmagns og menga því ekki þá er auðvitað í lagi að þau séu í höfn. Krafan hvetur yfirvöld og hafnir til að flýta áformum um landtengingu skemmtiferðaskipa.
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál.
ViðhengiGóðan dag
Hjálögð er umsögn Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga, dags. í dag, um áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál vegna markmiða um kolefnishlutleysi.
Kveðja, Íris Lind
ViðhengiMeðfylgjandi er umsögn Landverndar umm áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál. Kær kveðja, Auður
ViðhengiSjá meðf. umsögn Landsvirkjunar um mál nr. 10/2021 í samráðsgáttinni þar sem Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögn um áform um að lögfesta markmið um kolefnishlutlaust Ísland 2040 í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Umsögnin verður einnig send í tölvupóst á netfangið uar@uar.is
ViðhengiSæl
Meðfylgjandi er umsögn Ungra umhverfissinna um áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál (markmið um kolefnishlutleysi)
Kveðja
Tinna Hallgrímsdóttir, varaformaður UU
Viðhengi