Tímalína máls
Til umsagnar
21.1.–4.2.2021
Í vinnslu
5.–28.2.2021
Samráði lokið
1.3.2021
Skjöl til samráðs
Fylgiskjöl
Mál nr. S-17/2021
Birt: 21.1.2021
Fjöldi umsagna: 3
Áform um lagasetningu
Forsætisráðuneytið
Hagskýrslugerð og grunnskrár
Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar (lagasamræming)
Niðurstöður
Málsefni
Áformað er að fella úr gildi lög um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987, og að um mælingar á vísitölu byggingarkostnaðar fari í staðinn samkvæmt lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007.
Nánari upplýsingar
Fyrir liggur að launataxtar kjarasamninga og breytingar á virðisaukaskatti orsaka tilfærslur í mælingum vísitölunnar sem valdið hafa notendum vanda. Þörf er á umbótum við mælingu vísitölunnar og með því að lög nr. 163/2007 gildi í því efni yrði Hagstofu Íslands gert kleift að líta til alþjóðlegrar þróunar í aðferðafræði. Jafnframt yrði lagaumhverfi hagskýrslugerðar hérlendis fært til samræmis við fyrirkomulag á öðrum Norðurlöndum.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Tenging við önnur mál (1)
Umsjónaraðili
Forsætisráðuneytið/Skrifstofa stefnumála
for@for.is