Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.1.–8.2.2021

2

Í vinnslu

  • 9.2.–27.5.2021

3

Samráði lokið

  • 28.5.2021

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-22/2021

Birt: 26.1.2021

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga o.fl.)

Niðurstöður

Alls bárust fjórar umsagnir. Tvær frá einstaklingum sem lögðust gegn upphaflegu ákvæði frumvarpsins um heimild tollgæslunnar til leitar í innrituðum farangri. Umsagnirnar tvær gáfu ekki tilefni til sérstakra viðbragða af hálfu ráðuneytisins þar sem umrætt ákvæði tók nokkrum breytingum að loknu samráðstímabili. Þá barst umsögn frá SVÞ, sem var af sama meiði og fyrri umsögn á áformastigi, og ISAVIA sem gerði ekki efnislegar athugasemdir við sjálft frumvarpið. Umsagnirnar gáfu ekki tilefni til sérstakra viðbragða af hálfu ráðuneytisins.

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingar á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga o.fl.).

Nánari upplýsingar

Meginmarkmið frumvarpsins er að skýra heimildir tollyfirvalda til að vinna upplýsingar. Fullnægjandi heimildir til vinnslu upplýsinga, þ.á m. persónuupplýsinga, eru forsenda þess að tollyfirvöld geti tekist á við verkefni sín með nútímalegum hætti, m.a. með áhættustjórnun í samræmi við skilgreint hlutverk tollyfirvalda og alþjóðlegar skuldbindingar. Að auki er að finna í frumvarpinu auknar heimildir tollyfirvalda til til þess að leita í innrituðum farangri og heimildir til þess að leggja á stjórnvaldssektir vegna vanskila á farmskrá. Með því er m.a. brugðist við ábendingum frá FATF varðandi skort á eftirliti með flutningi reiðufjár til og frá landinu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Engin skráður umsjónaraðili.