Til umsagnar
24.2.–4.3.2021
Í vinnslu
5.3.–7.5.2021
Samráði lokið
8.5.2021
Mál nr. S-56/2021
Birt: 24.2.2021
Fjöldi umsagna: 6
Drög að frumvarpi til laga
Heilbrigðisráðuneytið
Lyf og lækningavörur
Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi - sjá hlekk:
Óskað er eftir umsögnum vegna draga að frumvarpi um breytinga á lögum nr. 65/1974 er snerta innflutning og ræktun iðnaðarhamps.
Á þingmálaskrá heilbrigðisráðherra fyrir 151. löggjafarþing er áætlað að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, vegna vinnslu iðnaðarhamps.
Heilbrigðisráðuneytið kynnir drög að frumvarpi um breytingu á lögum nr. 65/1974. Frumvarp þetta er samið af starfshóp sem heilbrigðisráðherra skipaði þann 12. júní 2020 og falið var að yfirfara lög nr. 65/1974 m.t.t. ræktunar og framleiðslu á iðnaðarhampi. Niðurstaða starfshópsins er að færa stjórnsýslu og verkefni í tengslum við málefnið, þ.e. innflutning á fræjum til landsins til ræktunar á iðnaðarhampi frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, fulltrúi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fulltrúi Lyfjastofnunar og fulltrúi Matvælastofnunar.
Frumvarpið fjallar ekki um Cannabidiol (CBD olíu) en þau mál eru til skoðunar hjá stjórnvöldum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa innviða heilbrigðisþjónustu
hrn@hrn.is