Samráð fyrirhugað 10.03.2021—24.03.2021
Til umsagnar 10.03.2021—24.03.2021
Niðurstöður í vinnslu frá 24.03.2021
Niðurstöður birtar

Drög að reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1294/2014, um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda

Mál nr. 74/2021 Birt: 10.03.2021 Síðast uppfært: 08.08.2022
  • Matvælaráðuneytið
  • Drög að reglugerð
  • Málefnasvið:
  • Landbúnaður

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (10.03.2021–24.03.2021). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Lögð er til breyting á reglugerð um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda sem lýtur að merkingu matvæla sem eru forpökkuð þannig að heimilt verði að veita lögbundnar matvælaupplýsingar með tæknilausnum.

Hingað til hefur verið heimilt að setja lögboðnar upplýsingar á forpökkuð matvæli með tvennum hætti, þ.e. annars vegar beint á umbúðunum eða hins vegar á merkimiða sem er festur á umbúðirnar. Með vísan til þess hefur við innflutning matvæla frá ríkjum utan EES þurft að endurmerkja matvæli með tilheyrandi kostnaði fyrir neytendur og innflytjendur auk þess sem slíkt hefur skapað viðskiptahindrun við nánustu viðskiptalönd Íslands utan EES og minnkað svigrúm EFTA-EES ríkjanna til að gera viðskiptasamninga við ríki utan EES. Með breytingunni er lagt til að heimilt verði að veita lögbundnar matvælaupplýsingar með tæknilausnum, þ.e. með því að vöruupplýsingar forpakkaðra matvæla séu aðgengilegar með strikamerki eða QR kóða sem unnt er að lesa af með smáforriti. Gerð er sú krafa að við sölu matvæla sem merkt eru með þeim hætti verði skylt að tryggja að fyrir hendi sé nauðsynlegur tækjabúnaður sem neytendur hafa aðgengi að á hverjum sölustað í því skyni að nálgast lögboðnar upplýsingar matvæla. Með hugbúnaðarnýsköpun og örri tækniþróun hefur tekist að búa til lausn sem tryggir sömu neytendavernd m.t.t. merkinga matvæla án þess að endurmerking sé nauðsynlegt.

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Jón Ragnar Gunnarsson - 18.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um málið.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#2 Samtök smáframleiðenda matvæla - 18.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Samtaka smáframleiðenda matvæla um málið.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#3 Neytendasamtökin - 18.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Neytendasamtakanna

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#4 Landssamband kúabænda - 22.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Landssambands kúabænda.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#5 Matvælastofnun - 23.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Matvælastofnunar um drög að reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1294/2014 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda (mál nr. 74/2021).

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#6 Félag atvinnurekenda - 24.03.2021

Í viðhengi er umsögn Félags atvinnurekenda.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#7 Katrín María Andrésdóttir - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn frá Sambandi garðyrkjubænda og Sölufélagi garðyrkjumanna.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#8 Sveitarfélagið Skagafjörður - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#9 Hörður Einarsson - 24.03.2021

Fyrirhuguð breyting er mjög óneytendavæn.

Innihaldslýsingar á matvöru þurfa að fylgja vörunni alveg inn í eldhús. Möguleiki á rafrænum lýsingum í verzlun eru alls ófullnægjandi upplýsingar fyrir neytendur.

Lagt er til, að fallið verði frá umræddri breytingarhugmynd, enda brýtur hún gegn öllum viðurkenndum sjónarmiðum um neytendavernd.

Virðingarfyllt,

Hörður Einarsson

Afrita slóð á umsögn

#10 Neytendastofa - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#11 Kjartan Hreinn Njálsson - 24.03.2021

Sjá umsögn embættis landlæknis í viðhengi.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#12 Samtök iðnaðarins - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn SI um málið.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#13 Bændasamtök Íslands - 24.03.2021

Sjá hjálagða umsögn Bændasamtaka Íslands.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#14 Viðskiptaráð Íslands - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands um málið.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#15 SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins og SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um drög að reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1294/2014, um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#16 Samtök ungra bænda - 24.03.2021

Meðfylgjandi er umsögn Samtaka ungra bænda um málið.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#17 Auður Alfa Ólafsdóttir - 24.03.2021

Meðfylgjandi í viðhengi er umsögn Alþýðusambands Íslands um drög að reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1294/2014, um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

Viðhengi