Samráð fyrirhugað 06.04.2021—20.04.2021
Til umsagnar 06.04.2021—20.04.2021
Niðurstöður í vinnslu frá 20.04.2021
Niðurstöður birtar 09.12.2021

Fisktækninám og annað nám tengt því

Mál nr. 94/2021 Birt: 06.04.2021 Síðast uppfært: 31.10.2023
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Annað
  • Málefnasvið:
  • Sjávarútvegur og fiskeldi

Niðurstöður birtar

Auglýsing um fyrirhugaðan samning mennta- og menningarmálaráðuneytisins um fisktækninám og annað nám tengt því til fimm ára við Fisktækniskóla Íslands, með fyrirvara um staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra var til umsagnar frá 6.-20. apríl 2021. Tvær umsagnir bárust, báðar jákvæðar. Ráðuneytið fór yfir umsagnirnar og var tekið tillit til þeirra í áframhaldandi vinnu við samninginn.

Ferill máls

Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 06.04.2021–20.04.2021. Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 09.12.2021.

Málsefni

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst gera samning við Fisktækniskóla Íslands með fyrirvara um staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra. Fyrirhuguð samningsgerð er um fisktækninám og annað nám tengt því, samningurinn er til 5 ára og gerður á grundvelli 44. gr. framhaldsskólaga nr. 92/2008 og 40. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2015.

Fyrirhuguð samningsgerð við Fisktækniskóla Íslands

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst gera samning við Fisktækniskóla Íslands með fyrirvara um staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra. Fyrirhuguð samningsgerð er um fisktækninám og annað nám tengt því, samningurinn er til 5 ára og gerður á grundvelli 44. gr. framhaldsskólaga nr. 92/2008 og 40. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2015. Áætlað er að samningurinn muni taka gildi 1. ágúst 2021 og að árlegt framlag á grundvelli hans verði 71 m.kr.

Athugasemdir við þessa fyrirhuguðu samningsgerð skulu berast ráðuneytinu innan 14 daga frá birtingu þessarar tilkynningar. Athugasemdir skulu berast á mrn@mrn.is

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Alþýðusamband Íslands - 20.04.2021

Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#2 Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) - 20.04.2021

Meðfylgjandi er umsögn SFS

Viðhengi