Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 28.4.–9.6.2021

2

Í vinnslu

  • 10.6.–31.8.2021

3

Samráði lokið

  • 1.9.2021

Mál nr. S-105/2021

Birt: 28.4.2021

Fjöldi umsagna: 0

Annað

Utanríkisráðuneytið

Utanríkismál

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar og deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli

Niðurstöður

Alls bárust 14 umsagnir til skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar. Í niðurstöðuskjali má nálgast umsagnirnar og umfjöllun um viðbrögð við þeim.

Málsefni

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030 og deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli.

Nánari upplýsingar

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030:

Utanríkisráðuneytið og Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hafa samþykkti að kynna tillögu að breyttu aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar í samræmi við 1. mgr. 36. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting felur í sér auknar byggingarheimildir á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Tillagan er einnig kynnt á heimasíðu Isavia.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli:

Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna breytingu á deiliskipulagi fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Landhelgisgæsla Íslands auglýsir hér með í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli.

Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast samkvæmt auglýsingu nr. 720/2015 um landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða. Helstu breytingar eru m.a. viðbótar byggingarheimildir, breytingar og stækkun á byggingarreitum og nýir byggingarreitir. Þá eru afmörkuð svæði fyrir efnisvinnslusvæði, skotvöll og birgðageymslusvæði, breytingar gerðar á byggingarreitum í því samhengi og byggingarheimild hækkuð.

Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar og öryggissvæða sveinn.valdimarsson@isavia.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila má skriflegum athugasemdum í gegnum Samráðsgáttina, með bréfi til Landhelgisgæslu Íslands (b.t. Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúa, Þjóðbraut 1, 235 Keflavíkurflugvöllur eða með því að senda tölvupóst á netfangið sveinn.valdimarsson@isavia.is. Frestur til að gera athugasemdir er til 9. júní 2021.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Öryggis- og varnarmálaskrifstofa

postur@mfa.is