Tímalína máls
Til umsagnar
12.–19.5.2021
Í vinnslu
20.5.–23.11.2021
Samráði lokið
24.11.2021
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-114/2021
Birt: 12.5.2021
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Breyting á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár
Niðurstöður
Reglugerðin var birt í B-deild Stjórnartíðinda 26. maí 2021 og tók gildi 3. júní 2021. Hún er nr. 594/2021.
Málsefni
Lagðar eru til breytingar á ákvæðum reglugerðar um talnagetraunir Íslenskrar getspár nr. 1170/2012 vegna breytinga á leikjaformi talnagetraunarinnar Víkingalottó. Einnig eru lagðar til smærri breytingar auk hækkunar á seldri röð.
Nánari upplýsingar
Vegna breytinga sem samstarfsþjóðir talnagetraunarinnar Víkingalottó hafa ákveðið að gera á uppbyggingu leiksins eru lagðar til nokkrar breytingar á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár nr. 1170/2012. Er lagt til að framlagi í efstu vinningsflokka verði breytt þannig að 1. vinningur lækki. Þá verði Víkingatölum fækkað úr 8 í 5, en við þá breytingu muni fyrsti vinningur ganga oftar út á hverju ári. Vegna breytinganna og gengisþróunar evru á síðasta ári er auk þess lagt til að verð á seldri röð hækki úr 100 kr. í 110 kr. Aðrar breytingar snúa einkum að heiti leiksins og leiðréttingu á heiti ráðuneytis.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Dómsmálaráðuneytið
postur@dmr.is