Samráð fyrirhugað 06.07.2021—16.08.2021
Til umsagnar 06.07.2021—16.08.2021
Niðurstöður í vinnslu frá 16.08.2021
Niðurstöður birtar

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1150/2019 um raforkuviðskipti og mælingar

Mál nr. 140/2021 Birt: 01.07.2021 Síðast uppfært: 21.01.2022
  • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
  • Drög að reglugerð
  • Málefnasvið:
  • Orkumál
  • Markaðseftirlit og neytendamál

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (06.07.2021–16.08.2021). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Reglugerðarbreyting varðar raforkusölusamninga við almenna notendur.

Með reglugerðinni er undirstrikað það hlutverk dreifiveitna raforku að upplýsa notendur, jafnt nýja notendur sem og við notendaskipti, um rétt þeirra til að velja sér sölufyrirtæki og rétt til að skipta um sölufyrirtæki. Jafnframt er kveðið á um að sölufyrirtæki skuli hafa raforkusölusamninga aðgengilega á vefsíðu sinni og að raforkusölusamning við almenna notendur skuli staðfesta með rafrænum skilríkjum. Nánar er kveðið á um söluaðila til þrautavara í reglugerðinni og hvernig staðið skuli að vali á þeim sölufyrirtækjum sem falin er sú samfélagslega ábyrgð og skylda sem því afmarkaða hlutverki fylgir, þannig að tryggt sé að jafnræðis sé gætt. Markmið reglugerðarinnar er að auka neytendavernd og stuðla að aukinni samkeppni á raforkumarkaði, raforkunotendum til góða.

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Íris Lind Sæmundsdóttir - 14.08.2021

Góðan dag

Hjálögð er umsögn Orku náttúrunnar, dags. í dag, við framkomin drög að breytingum á reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar.

Allar frekari upplýsingar veitir undirrituð verði eftir því óskað.

Bkv. Íris Lind

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#2 Orkusalan ehf. - 14.08.2021

Heil og sæl!

Sjá umsögn Orkusölunnar í viðhengi.

Kveðja,

Magnús Kristjánsson

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#3 Orka heimilanna ehf. - 16.08.2021

Umsögn Orku heimilanna vegna breytinga á reglugerð nr. 1150/2019 um raforkuviðskipti og mælingar, mál nr. 140/2021

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#4 Baldur Dýrfjörð - 16.08.2021

Hjálögð er umsögn Samorku.

Virðingarfyllst,

Baldur Dýrfjörð lögfræðingur Samorku

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#5 Ólöf Embla Einarsdóttir - 16.08.2021

Sjá viðhengi.

Viðhengi