Tímalína máls
Til umsagnar
21.7.–1.9.2021
Í vinnslu
2.9.–2.11.2021
Samráði lokið
3.11.2021
Mál nr. S-147/2021
Birt: 21.7.2021
Fjöldi umsagna: 2
Annað
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Skýrsla um alþjóðasamninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi
Niðurstöður
Umsagnirnar verða hafðar til hliðsjónar við skýrsluskrifin. Þegar drög að skýrslunni liggja fyrir verða þau kynnt á samráðsgáttinni og verður þá hægt að koma á framfæri frekari athugasemdum.
Málsefni
Óskað er eftir tillögum og ábendingum um þau atriði sem leggja skal áherslu á í sjöttu skýrslu Íslands vegna alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.
Nánari upplýsingar
Hafin er vinna við sjöttu skýrslu Íslands um alþjóðasamninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi (e. International Covenant on Civil and Political Rights). Eftirlit með samningnum er í höndum Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna (e. Human Rights Committee) og í skýrslunni ber fyrst og fremst að svara þeim spurningum sem nefndin beindi til Íslands 22. apríl 2021 (e. List of issues). Leitast verður við að gefa sem réttasta mynd af því hvernig samningnum hefur verið framfylgt frá því seinasta úttekt fór fram og hvernig tekið hefur verið tillit til lokaathugasemda nefndarinnar til Íslands frá árinu 2012.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi, þar sem eiga sæti fulltrúar allra ráðuneyta, mun halda utan um skýrsluskrifin. Hópurinn vill eiga gott samráð við hagsmunaaðila við gerð skýrslunnar. Er því hér með óskað eftir ábendingum og tillögum um þau atriði sem leggja skal áherslu á í skýrslunni. Þegar drög að skýrslunni liggja fyrir verða þau kynnt á samráðsgáttinni og verður þá hægt að koma á framfæri frekari athugasemdum við skýrsluna. Skila ber skýrslunni til nefndarinnar fyrir 22. apríl 2022.
Frjáls félagasamtök geta einnig útbúið sínar eigin skýrslur og sent nefndinni, en nánari upplýsingar um það ferli má nálgast hér: http://tbinternet.ohchr.org/_layouts/15/treatybodyexternal/TBSearch.aspx?Lang=en&SymbolNo=CCPR/C/104/3
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi
mannrettindi@dmr.is