Tímalína máls
Til umsagnar
19.10.–2.11.2021
Í vinnslu
3.11.2021–4.10.2022
Samráði lokið
5.10.2022
Mál nr. S-192/2021
Birt: 18.10.2021
Fjöldi umsagna: 5
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Umhverfismál
Drög að breytingu á reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags
Niðurstöður
Sjá meðfylgjandi niðurstöðuskjal.
Málsefni
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingu á reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags. Markmið breytinganna er að mæla fyrir um nýtingarflokka fyrir strandsvæðisskipulag.
Nánari upplýsingar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingu á reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags. Markmið breytinganna er að mæla fyrir um nýtingarflokka fyrir strandsvæðisskipulag.
Með nýtingarflokkum eru lagðar fram áherslur um forgangsnýtingu á tilteknu svæði, auk þess að lýsa því hvaða önnur nýting er möguleg á viðkomandi svæði. Nýtingarflokkar strandsvæðaskipulags eru sambærilegir landnotkunarflokkum í aðalskipulagi sveitarfélaga en um þá er mælt fyrir í skipulagsreglugerð.
Nýtingaflokkar eru taldir forsenda þess að unnt sé að tryggja samræmda nálgun við skipulagsgerðina á landsvísu og hafa grundvallarþýðingu fyrir túlkun skipulagsins og samanburð mismunandi skipulagssvæða.
Sérstaklega er horft til þess að skilgreining og útfærsla nýtingaflokka geti stutt stjórnvöld sem best við að stuðla að fjölbreyttri nýtingu strandsvæða og skapað grundvöll fyrir ólíka nýtingu á sömu svæðum í þeim tilfellum sem ólík nýting getur farið saman í samræmi við markmið laga um skipulag haf- og strandsvæða.
Óskað er eftir umsögnum um reglugerðardrögin fyrir 2. nóvember.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
irn@irn.is