Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–30.12.2021

2

Í vinnslu

  • 31.12.2021–3.1.2022

3

Samráði lokið

  • 4.1.2022

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-225/2021

Birt: 2.12.2021

Fjöldi umsagna: 3

Áform um lagasetningu

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Tóbaksvarnalög

Niðurstöður

Í ljósi þess að næsti fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar verður ekki fyrr en 4. febrúar 2022 þá er ekki nægilegt svigrúm til að setja málið í þann farveg sem þarf á 152. löggjafarþingi. Hefur því verið ákveðið að fresta málinu að svo stöddu og er áætlað að setja það á dagskrá 153. löggjafarþings.

Málsefni

Áformað er að sameiginlega EES-nefndin taki tóbaksvarnatilskipunina upp í EES-samninginn í janúar 2022. Í tilefni af því er hafin vinna við endurskoðun laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 og af því tilefni birtast hér áform um lagasetningu þess efnis, frummat á áhrifum þess sem og þýðing á tilskipuninni.

Nánari upplýsingar

Árið 2014 samþykktu Evrópuþingið og ráðið tilskipun 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niðurfellingu á tilskipun 2001/37/EB. Lagasetning er áformuð þar sem fyrir liggur að taka tilskipun 2014/40/ESB upp í EES-samninginn í janúar 2022.

Með umræddri lagabreytingu er ætlunin að innleiða í íslenskan rétt Evrópulöggjöf um tóbaksvörur og tengdar vörur. Markmið tilskipunarinnar er meðal annars að samræma lög og stjórnsýslufyrirmæli aðildarríkjanna um innhaldsefni og losun tóbaksvara og tengdar kvaðir um skýrslugjöf, þ.m.t. hámarksgildi losunar að því er varðar tjöru, nikótín og kolsýring úr vindlingum, tiltekna þætti sem varða merkingu og umbúðir tóbaksvara, þ.m.t. viðvörunarmerkingar sem eiga að vera á einingarpökkum sem innihalda tóbaksvörur og allar ytri umbúðir sem og rekjanleika og öryggisþætti sem beitt er varðandi tóbaksvörur til að tryggja að þær uppfylli kröfur tilskipunarinnar. Þá er lagt bann við að setja munntóbak á markað, veitt heimild til að banna fjarsölu á tóbaksvörum yfir landamæri og sett skylda um að leggja fram tilkynningu um nýjar tóbaksvörur sem eiga að fara á markað og aðrar vörur sem tengjast tóbaksvörum, meðal annars jurtavörur til reykinga.

Til stendur að undirbúa frumvarp til nýrra heildarlaga um tóbaksvarnir því í ljós hefur komið að breytingalög myndu leiða til breytinga á nærri öllum greinum gildandi laga, þrátt fyrir að sett hafi verið sérlög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018, og um leið gera lögin aðgengilegri og skýrari.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilsueflingar og vísinda

hrn@hrn.is