Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.–31.1.2022

2

Í vinnslu

  • 1.2.–14.7.2022

3

Samráði lokið

  • 15.7.2022

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-11/2022

Birt: 17.1.2022

Fjöldi umsagna: 24

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Sjúkrahúsþjónusta

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (stjórn Landspítala)

Niðurstöður

Ráðherra mælti fyrir frumvarpinu á vorþingi 152. löggjafarþings og varð það að lögum nr. 44/2022, með þeim breytingum sem gerðar voru á frumvarpinu í meðförum þingsins.

Málsefni

Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kemur fram að skipuð verði fagleg stjórn yfir Landspítala að norrænni fyrirmynd. Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar þess efnis.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið er liður í innleiðingu þeirra áherslumála sem fram koma í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs en í stjórnarsáttmála kemur fram að staða og hlutverk Landspítala sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og sérstök áhersla lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu og bráðadeildar. Er stjórn spítalans ætlað að gegna stefnumarkandi hlutverki í þeirri þróun.

Markmið frumvarpsins er að styrkja stjórn stærstu heilbrigðisstofnunar landsins, Landspítala, með því að veita lagastoð fyrir því að stjórn verði skipuð yfir spítalann sem gegni því hlutverki að tryggja frekari faglegan rekstur spítalans.

Helstu nýmæli sem felast í frumvarpinu eru að stjórn verði sett á stofn yfir Landspítala. Stjórninni verði ætlað að starfa sem æðsta valdi innan stofnunarinnar og eiga ríkt samstarf við forstjóra stofnunarinnar sem og ráðherra heilbrigðismála um stefnu og rekstur stofnunarinnar. Stjórninni er ætlað að marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra en einnig að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun hennar og fjárhagsáætlun. Í þessu felst enn fremur að stjórninni sé ætlað að bera ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits innan Landspítala með reglubundnum aðgerðum og ráðstöfunum til að stuðla að hagkvæmni í rekstri, öryggi fjármuna, áreiðaleika upplýsinga og að markmiðum starfseminnar sé náð.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Heilbrigðisráðuneytið

hrn@hrn.is