Tímalína máls
Til umsagnar
26.1.–10.2.2022
Í vinnslu
11.2.–2.10.2022
Samráði lokið
3.10.2022
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-19/2022
Birt: 26.1.2022
Fjöldi umsagna: 1
Annað
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Drög að uppfærðum viðskiptaskilmálum ríkisins við kaup á vörum og þjónustu
Niðurstöður
Nýir viðskiptaskilmálar hafa verið birtir á vef ráðuneytisins. Fjársýslan og Ríkiskaup munu sjá um samskipti við markaðsaðila til kynningar.
Málsefni
Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að uppfærðum almennum viðskiptaskilmálum ríkisins við kaup á vörum og þjónustu sem hafa verið í gildi frá 1.11.2014.
Nánari upplýsingar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að uppfærðum almennum viðskiptaskilmálum ríkisins við kaup á vörum og þjónustu sem hafa verið í gildi frá 1.11.2014. Fjársýslan sér um verklagsreglur á móttöku og greiðslu reikninga og byggja þær reglur á viðskiptaskilmálum sem ráðuneytið gefur út fyrir þau viðskipti sem eiga sér ekki stað á grunni annarra samninga svo sem eftir útboð.
Helstu breytingar lúta að skýrari ákvæðum varðandi móttöku rafrænna reikninga og dagsetningu þeirra. Viðskiptaskilmálar sem settir eru fram til samráðs eru á grundvelli reglugerðar 822/2021 og kveða nánar um viðskiptaskilmálana.
Núgildandi viðskiptaskilmála sem til stendur að uppfæra má finna hér: https://www.fjs.is/media/rafraenirreikningar/2014.10-Vidskiptaskilmalar-rikisins.pdf
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Skrifstofa stjórnunar og umbóta
fjr@fjr.is