Samráð fyrirhugað 28.01.2022—11.02.2022
Til umsagnar 28.01.2022—11.02.2022
Niðurstöður í vinnslu frá 11.02.2022
Niðurstöður birtar

Áform um niðurfellingu laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis og breytingu á lögum um eignarrét íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins

Mál nr. 22/2022 Birt: 28.01.2022 Síðast uppfært: 31.01.2022
  • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
  • Áform um lagasetningu
  • Málefnasvið:
  • Orkumál
  • Umhverfismál

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (28.01.2022–11.02.2022). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir áform um niðurfellingu laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis og breytingu á lögum um eignarrét íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins

Í stjórnarsáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, 2021 er sett fram það markmið að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Ríkisstjórnin muni ekki gefa út nein leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands.

Samkvæmt lögum nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins má enginn leita að efnum til hagnýtingar á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni utan netlaga nema að fengnu skriflegu leyfi Orkustofnunar. Með lögum nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis var í löggjöfinni settur rammi um leyfisveitingu fyrir leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.

Þannig gerir núgildandi löggjöf ráð fyrir að hægt sé að uppfylltum skilyrðum að fá útgefið leyfi til rannsóknar og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögu Íslands.

Áformað er að fella brott lög nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Eins og rakið er hér að framan er stefna stjórnvalda að gefa ekki út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Til samræmis við þá stefnu er áformað að orða með jákvæðum hætti bann við leit og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögu Íslands í lögum nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins.

Tengd mál

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Landvernd, landgræðslu- og umhverisverndarsamtök Íslands - 08.02.2022

Vinsamlegast sjá í viðhengi umsögn Landverndar.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#2 Umhverfisstofnun - 11.02.2022

Meðfylgjandi er umsögn Umhverfisstofnunar um áform um niðurfellingu laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis og breytingu á lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, mál nr. 22/2022

Viðhengi