Til umsagnar
11.–28.2.2022
Í vinnslu
1.3.–14.8.2022
Samráði lokið
15.8.2022
Mál nr. S-33/2022
Birt: 11.2.2022
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Fjölskyldumál
Frumvarpið var samþykkt á Alþingi 15. júní 2022
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.
Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á fjórum lagabálkum á málefnasviði félag- og vinnumarkaðsráðuneytisins, nánar tiltekið lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008, og lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011. Þá eru lagðar til minni háttar breytingar á nýsamþykktum lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.
Ákvæði frumvarpsins hafa það að markmiði að afnema lagalegar hindranir sem tengjast setningu og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, laga um Barna- og fjölskyldustofu, nr. 87/2021, og laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021. Frumvarpinu er jafnframt ætlað að skapa skilyrði til að bregðast fyrr við tilteknum aðstæðum eða erfiðleikum í lífi barns með viðeigandi stuðningi þegar þörf þykir. Þá er ætlunin með frumvarpinu að bæta og skýra réttindi barna.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa barna- og fjölskyldumála
frn@frn.is