Tímalína máls
Til umsagnar
14.3.–11.4.2022
Í vinnslu
12.4.–6.9.2022
Samráði lokið
7.9.2022
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-62/2022
Birt: 14.3.2022
Fjöldi umsagna: 6
Drög að reglugerð
Heilbrigðisráðuneytið
Lyf og lækningavörur
Drög að reglugerð um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir
Niðurstöður
Drögin voru uppfærð og sett til samráðs að nýju, sjá mál 159/2022.
Málsefni
Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar drög að nýrri reglugerð um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir.
Nánari upplýsingar
Um er að ræða heildarendurskoðun á reglugerð nr. 426/1997 um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir. Drög að nýrri reglugerð hafa verið útbúin ásamt því að sameina reglugerð nr. 560/2018 um póst- og netverslanir með lyf í eina heildstæða reglugerð.
Helstu breytingar frá gildandi reglugerðum eru eftirfarandi:
• Flokkum lyfjaútibúa er fækkað úr fjórum í tvo ásamt því að gildistími rekstrarleyfanna er styttur niður í eitt ár.
• Lyfsöluleyfishafi getur opnað lyfjabúð sem aðeins starfrækir netverslun með lyf.
• Lyfjabúðum er veitt heimild til að semja við þriðja aðila í verktöku til að sinna afhendingu lyfja utan lyfjabúða.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Tenging við önnur mál (1)
Umsjónaraðili
Skrifstofa innviða heilbrigðisþjónustu
bjorg.thorkelsdottir@hrn.is