Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.4.–6.5.2022

2

Í vinnslu

  • 7.5.2022–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-83/2022

Birt: 22.4.2022

Fjöldi umsagna: 1

Drög að reglugerð

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Aukið öryggi á vegum

Málsefni

Innviðaráðuneytið hefur undanfarið unnið að setningu reglna um sjálfstætt eftirlit með öryggi vegamannvirkja og birtir nú til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 866/2011

Nánari upplýsingar

Breytingarnar sem felast í drögunum fela annars vegar í sér skýr ákvæði um sjálfstætt eftirlit Samgöngustofu með framkvæmd öryggisstjórnunar vegamannvirkja. Hins vegar eru breytingarnar tilkomnar vegna fyrirhugaðar innleiðingar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1936 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2008/96/EB um öryggisstjórnun vegagrunnvirkja.

Helstu breytingar sem snúa að eftirliti Samgöngustofu með umferðaröryggisstjórnun vegamannvirkja eru eftirfarandi:

• Veghaldara verði gert að tilkynna Samgöngustofu um niðurstöður umferðaröryggisúttekta og það skýrt að gefi eftirlit Samgöngustofu með framkvæmd umferðaröryggisstjórnunar tilefni til geti stofnunin sjálf framkvæmt eða látið framkvæma umferðaröryggisúttekt á vettvangi.

• Samgöngustofa gefi eða láti gefa út námskrá fyrir umferðaröryggisrýna í stað Vegagerðarinnar. Námskráin skuli þó unnin í samráði við Vegagerðina.

• Bætt er við nýrri grein um eftirlit með umferðaröryggisstjórnun vegamannvirkja. Samkvæmt henni fer Samgöngustofa með eftirlit með framkvæmd umferðaröryggisstjórnunar í formi stjórnsýsluúttekta á verklagi við umferðaröryggisstjórnun. Samgöngustofa getur gefið fyrirmæli um úrbætur á verklagi ef þörf er á. Einnig er gert ráð fyrir að Samgöngustofa skuli óska eftir tímasettri úrbótaáætlun ef öryggi vegar er svo áfátt að hætta stafar af. Sé öryggi verulega ábótavant getur Samgöngustofa gefið út öryggisfyrirmæli um úrbætur.

Helstu breytingar sem lagðar eru til vegna fyrirhugaðrar innleiðingar tilskipunarinnar eru eftirfarandi:

• Gildissvið reglugerðar nr. 866/2011 er útvíkkað þannig að það tekur einnig til stofnvega utan samevrópska vegakerfisins.

• Í stað þess að flokka skuli kafla vega eftir slysatíðni á þriggja ára fresti skal nú framkvæma umferðaröryggismat á vegakerfinu í heild sem reglugerðin tekur til á fimm ára fresti frá árinu 2024. Slíku mati skal fylgt eftir með annaðhvort markvissum umferðaröryggisúttektum eða beinum aðgerðum til úrbóta og að við slíkar aðgerðir skal taka tillit til þarfa óvarinna vegfarenda. Semja skal áhættumiðaða aðgerðaráætlun til að fylgjast með framkvæmd auðkenndrar aðgerðar til úrbóta.

• Gerð er krafa um að öryggi vegkafla sem liggja að jarðgöngum sem falla undir ákvæði reglugerðar um öryggiskröfur fyrir jarðgöng nr. 895/2021 sé tryggt með sameiginlegum umferðaröryggisúttektum með öryggisfulltrúa jarðganga á minnst sex ára fresti.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

irn@irn.is