Samráð fyrirhugað 09.05.2022—23.05.2022
Til umsagnar 09.05.2022—23.05.2022
Niðurstöður í vinnslu frá 23.05.2022
Niðurstöður birtar 10.10.2022

Breyting á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár

Mál nr. 87/2022 Birt: 09.05.2022 Síðast uppfært: 10.10.2022
  • Dómsmálaráðuneytið
  • Drög að reglugerð
  • Málefnasvið:
  • Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Niðurstöður birtar

Um reglugerðardrögin bárust tvær umsagnir, báðar frá einstaklingum, en þær urðu ekki tilefni til breytinga á drögunum. Reglugerðin var birt í B-deild Stjórnartíðinda 15. júní 2022 og öðlaðist gildi 26. júní 2022.

Skjal að loknu samráði

Ferill máls

Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 09.05.2022–23.05.2022. Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 10.10.2022.

Málsefni

Lagðar eru til breytingar á ákvæðum reglugerðar fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár nr. 1170/2012 vegna breytinga á leiknum Lottó 5/40. Einnig er lögð til hækkun á seldri röð.

Vegna fyrirhugaðra breytinga á leiknum Lottó 5/40, sem fela í sér að leikurinn breytist úr Lottó 5/40 í Lottó 5/42, eru lagðar til nokkrar breytingar á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár nr. 1170/2012. Enn fremur er lagt til að verð á seldri röð hækki úr 130 kr. í 150 kr.

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Örn Jónasson - 11.05.2022

Ekki gott mál.

Þessi breyting mun minnka vinningslíkurnar verulega og ekki voru þær miklar fyrir.

Líklega eru mun meiri líkur að verða fyrir loftsteini en að fá hæsta vinninginn í lottó.

Einnig tel ég að vegna minnkandi möguleika á vinningi að fólk hætti einfaldlega að kaupa Lottó íslenskrar getspár.

Afrita slóð á umsögn

#2 Tryggvi Þórarinsson - 12.05.2022

Ég er ekki að átta mig á þörfinni á þessum breytingum, það eru bæði Viking lottó og Euru jackpott í boði en þar eru líkur litlar.

Með því að breyta þessu gamla góða Lottó okkar er farin sú leið að safna saman einhverjum stótum potti sem kannski einn vinningshafi tekur til sín í stað þess að vera með pott sem er frá því að vera einfaldur upp í sjöfaldur og þá dreifast vinningar víða á vinningshafa.

Þetta er mjög neikvæði breyting og mun ég tildæmis hætta með minn áskriftarmiða ef þetta verður gert.