Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 14.7.–14.8.2022

2

Í vinnslu

  • 15.8.2022–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-126/2022

Birt: 14.7.2022

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um starfsemi og aðbúnað á skammtímadvalarstöðum, nr. 1037/2018

Málsefni

Kynnt eru drög að breytingu á reglugerð um um starfsemi og aðbúnað á skammtímadvalarstöðum sem miða að því að aðlaga ákvæði reglugerðarinnar að nýjum lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Nánari upplýsingar

Ný lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021 kalla á endurskoðun á regluverki á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Lögin fela m.a. í sér breytingar á fyrirkomulagi leyfisveitinga fyrir velferðarþjónustu og er starfsemi allra einkaaðila sem fara með þjónustu sem lýtur eftirliti stofnunarinnar rekstrarleyfisskyld. Í lögunum eru meðal annars sett fram viðmið um kröfur til umsækjanda um rekstrarleyfi, málsmeðferð og útgáfu leyfanna. Þá eru þar ákvæði um endurnýjun leyfa og bráðabirgðaleyfi.

Breytingarnar sem eru kynntar hér miða að því að aðlaga ákvæði reglugerðanna að breyttu lagaumhverfi.

Ástæðan fyrir brottfalli reglugerðar nr. 1036/2018 um eftirlit og eftirfylgni vegna þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, reglugerðar nr. 856/2020 um starfsleyfi til einkaaðila sem veita þjónustu við fatlað fólk og reglugerðar nr. 1320/2020 um starfsleyfi til einkaaðila sem veita félagsþjónustu er að með tilkomu nýrra laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála er fjallað með samræmdum hætti um málsmeðferð leyfisveitinga til einkaaðila í lögum.

Jafnframt er hugmyndin að fella brott reglugerðir sem settar voru í tíð eldri laga um málefni fatlaðs fólks.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa félags- og lífeyrismála

frn@frn.is