Samráð fyrirhugað 24.08.2022—07.09.2022
Til umsagnar 24.08.2022—07.09.2022
Niðurstöður í vinnslu frá 07.09.2022
Niðurstöður birtar

Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um Kvikmyndasjóð, nr. 229/2003

Mál nr. 153/2022 Birt: 24.08.2022 Síðast uppfært: 15.09.2022
  • Menningar- og viðskiptaráðuneytið
  • Drög að reglugerð
  • Málefnasvið:
  • Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (24.08.2022–07.09.2022). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Reglugerðin felur í sér nánari útfærslu á tillögum í frumvarpi til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (framleiðslustyrkir til lokafjármögnunar).

Menningar- og viðskiptaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um Kvikmyndasjóð, nr. 229/2003.

Með reglugerðinni er lagður til nýr kafli sem fjallar um fyrirkomulag framleiðslustyrkja til lokafjármögnunar sjónvarpsþáttaraða sem Kvikmyndasjóði er heimilt að veita samkvæmt frumvarpinu. Verkefnin sem geta sótt um í sjóðinn þurfa að höfða til breiðs hóps áhorfenda, vera á íslensku eða hafa aðra íslenska menningarlega og samfélagslega skírskotun og stuðla að eflingu íslenskrar kvikmyndagerðar. Í reglugerðinni er nýi styrkjaflokkurinn skilgreindur og hvers konar verkefni hafa rétt á að sækja um í hann. Fjallað er í meginatriðum um hvernig verkefni og umsóknargögn eru ólík þeim sem sækja um framleiðslustyrk til grunnfjármögnunar. Þó skal tekið fram að almenn ákvæði reglugerðar um Kvikmyndasjóð gilda þar sem sérstökum ákvæðum breytingarreglugerðarinnar sleppir.

Helstu breytingar reglugerðarinnar eru:

• Nýr kafli um fyrirkomulag framleiðslustyrkja til lokafjármögnunar

• Skilgreining leikinna sjónvarpsþáttaraða og umsækjenda sem geta sótt um framleiðslustyrki til lokafjármögnunar

• Fjallað er um þau umsókngargögn sem fylgja skulu umsóknum auk þeirra gagna sem eru nefnd í 11. gr. reglugerðar um Kvikmyndasjóð nr. 229/2003.

• Fjallað er um fyrirkomulag mats umsókna, styrkfjárhæð og skilyrði fyrir endurheimt framleiðslustyrks til lokafjármögnunar.

Kvikmyndamiðstöð Íslands setur að auki nánari reglur um hlutfall, skilyrði og fyrirkomulag á endurheimt framleiðslustyrkja til lokafjármögnunar, hvaða tekjur mynda grundvöll til kröfu um endurheimtir og önnur nauðsynleg atriði í samningum um úthlutun styrkja.

Tengd mál

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda (Samtök iðnaðarins) - 15.09.2022

Viðhengi