Til umsagnar
29.8.–9.9.2022
Í vinnslu
10.9.–9.10.2022
Samráði lokið
10.10.2022
Mál nr. S-155/2022
Birt: 29.8.2022
Fjöldi umsagna: 1
Drög að reglugerð
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Um reglugerðardrögin barst ein umsögn, frá Samtökum áhugafólks um spilafíkn, en hún varð ekki tilefni til breytinga á drögunum. Reglugerðin var birt í B-deild Stjórnartíðinda 16. september 2022 og öðlaðist gildi 19. september 2022.
Lögð er til breyting á reglugerð fyrir Íslenskar getraunir vegna áforma Íslenskra getrauna um að taka upp nýjan getraunaleik.
Vegna áforma Íslenskra getrauna um að taka upp nýjan getraunaleik í samstarfi við Svenska Spel er lögð til breyting á reglugerð fyrir Íslenskar getraunir nr. 166/2016. Þar koma fram nánari reglur um leikinn en hann felst í því að þátttakendur giska á hversu mörg mörk verði skoruð í heild í hverjum leik af þeim 13 leikjum sem giskað er á. Á getraunaseðli leiksins verði sömu leikir og eru á enska getraunaseðlinum, en í þessu tilviki verði einungis giskað á fjölda heildarmarka í leik.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga
postur@dmr.is