Tímalína máls
Til umsagnar
16.9.–2.10.2022
Í vinnslu
3.10.2022–29.1.2023
Samráði lokið
30.1.2023
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-168/2022
Birt: 16.9.2022
Fjöldi umsagna: 7
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Umhverfismál
Breyting á lögum um póstþjónustu (Leiðrétting, bréfakassasamstæður, innleiðing Evrópureglna.)
Niðurstöður
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019 (úrbætur á póstmarkaði) var lagt fram á Alþingi 2. desember 2022. Fjallað er um niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.
Málsefni
Innleiðing á framkvæmdarreglugerð ESB, heimild fyrir aukinni notkun bréfakassasamstæðna og lagfæring á lögunum.
Nánari upplýsingar
Frumvarpsdrögin fela í sér breytingar á lögum um póstþjónustu nr. 98/2019, með síðari breytingum. Í fyrsta lagi er lagt til að setja lagastoð undir framkvæmdarreglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1263, í öðru lagi er lagt til að rýmka heimildir til notkunar bréfakassasamstæða í þéttbýli og í þriðja lagi er lagt til að fjarlæga orðið „Póst- og fjarskiptastofnun“ endanlega úr lögunum.
Lagt er til að ráðherra verði veitt heimild til að innleiða framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1263 með reglugerð líkt og heimild hefur verið veitt með grunnreglugerðina, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/644) um pakkasendingar yfir landamæri. Grunnreglugerðinni er einkum ætlað að ýta undir traust neytenda á því að eiga viðskipti á netinu milli landa með aukinni söfnun og miðlun upplýsinga um pakkasendingaþjónustu. Framkvæmdarreglugerðin varðar sérstök eyðublöð sem póstrekendum af ákveðinni stærð, ber að nota. Hafa ber í huga að reglugerðin gildir aðeins yfir landamæri en ekki innanlands.
Þá er lagt til að gerðar verði breytingar á 1. málslið 5. mgr. 27. gr. laganna. Þetta ákvæði var fyrst og fremst hugsað fyrir þéttbýli á landsbyggðinni eða í hinum dreifðari byggðum til að minnka kostnað við alþjónustu. Þannig þyrfti pósturinn aðeins að stoppa á einum stað í stað þess að keyra við í hverju húsi og setja bréf um bréfalúgu. Ljóst er, sé litið til framtíðar í póstþjónustu bæði hér á landi og t.d. í Noregi þá mun verða meiri notkun á bréfakassasamstæðum í framtíðinni í stað útburðar í hvert hús, meira að segja á stærri þéttbýlisstöðum. Hefur þetta sparnað í för með sér og jákvæð umhverfisáhrif.
Loks er lagt til að bæta úr mistökum við lagasetningum þegar verkefni voru færð frá Póst- og fjarskiptastofnun yfir til Byggðastofnun. Við lagasetningu var orðið „Póst- og fjarskiptastofnun“ ekki að fullu afmáð úr lögunum. Þrátt fyrir að lykilákvæði hafi verið breytt á sínum tíma sem tryggir Byggðastofnun fullt umboð til að annast framkvæmd laganna þykir rétt að færa þetta að fullu í rétt horf.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Tenging við önnur mál (1)
Umsjónaraðili
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
irn@irn.is